Fara í efni
Fréttir

Sterk staða Sparisjóðs Suður-Þingeyinga

Örn Arnar Óskarsson sparisjóðsstjóri, lengst til vinstri, ásamt fjórum af fimm stjórnarmönnum, sem eru: Eiríkur H. Hauksson, Elísabet Gunnarsdóttir, Margrét Hólm Valsdóttir og Andri Björgvin Arnþórsson.

Rekstur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga gekk vel á síðastliðnu ári. Hagnaður af rekstri varð tæpar 205 milljónir króna eftir skatta. Aðalfundur Sparisjóðsins var haldinn að Breiðumýri í Reykjadal fyrir nokkru. 

Heildareignir sjóðsins voru 13,1 milljarður króna um áramótin og jukust um 840 milljónir á milli ára. Innlán voru á sama tíma um 11,5 milljarðar, að því er fram kemur í tilkynningu Sparisjóðsins. Eigið fé var 1,3 milljarðar í árslok og er lausafjárstaða sögð sterk. 

Í stjórn sparisjóðsins voru kjörin Andri Björgvin Arnþórsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Eiríkur H. Hauksson, Margrét Hólm Valsdóttir og Sigríður Jóhannesdóttir. Varamenn eru Bergþór Bjarnason og Pétur B. Árnason.


Örn Arnar Óskarsson sparisjóðsstjóri og Jón Sverrir Sigtryggsson formaður HSÞ.

Stuðningur við íþróttastarf barna og ungmenna HSÞ

Á aðalfundinum var tilkynnt að Sparisjóðurinn muni styrkja íþróttastarf barna og ungmenna hjá aðildarfélögum Héraðssambands Þingeyinga (HSÞ) um samtals 11 milljónir króna á árinu. Nánari útfærsla verður kynnt aðildarfélögunum á næstunni.