Fara í efni
Menning

Sólveig Lára er Ungskáld Akureyrar

Verðlaunahafar Ungskálda 2024. Frá vinstri: Ágústa Arnþórsdóttir, Sólveig Lára Skarphéðinsdóttir og Sigrún Freygerður Finnsdóttir.

Sólveig Lára Skarphéðinsdóttir er Ungskáld Akureyrar 2024. Hún hlaut fyrstu verðlaun í samnefndri ritlistakeppni fyrir verkið Stök. Þetta er 12. árið sem Ungskáldaverkefnið er starfrækt og voru úrslit kunngjörð á Amtsbókasafninu í gær, á degi íslenskrar tungu.

Alls bárust 26 verk í keppnina frá 18 þátttakendum, að því er segir á vef Akureyrarbæjar. Úrslit voru sem hér segir – smellið á titlana til að lesa verkin:

1. sæti – Sólveig Lára Skarphéðinsdóttir, 18 ára, fyrir verkið Stök

2. sæti – Ágústa Arnþórsdóttir, 16 ára, fyrir verkið Frestunarárátta

3. sæti – Sigrún Freygerður Finnsdóttir, 18 ára, fyrir verkið Svartnætti

Í dómnefndinni sátu Arnar Már Arngrímsson, rithöfundur, Rakel Hinriksdóttir, listamaður og skáld, og Vilhjálmur B. Bragason, vandræðaskáld.

Þetta er 12. árið sem Ungskáldaverkefnið er starfrækt eins og áður sagði, og hefur það vaxið og dafnað með hverju árinu. Á þessu ári var boðið upp á Kaffihúsakvöld þar sem ungskáld gátu lesið úr verkum sínum og rætt málin og einnig tvær ritlistasmiðjur þar sem annars vegar Vigdís Hafliðadóttir, söngkona, uppistandari og textasmiður, og hins vegar Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur, öðru nafni Ævar vísindamaður, voru leiðbeinendur. Kaffihúsakvöldið og ritlistasmiðjurnar gátu ungmennin sótt sér að kostnaðarlausu.

Við athöfnina á Amtsbókasafninu lék Elías Dýrfjörð á kontrabassa.

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtsbókasafninu.

Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.