Fréttir
Snjómokstur bæjarins unninn eftir forgangskorti
02.04.2024 kl. 10:59
Mynd: Akureyrarbær
Á heimasíðu og Facebook síðu Akureyrarbæjar segir frá því að starfsmenn bæjarins og verktakar séu í óða önn við að moka snjó eftir snjóþunga páskahelgina. Stígamokstur er í fullum gangi og verið er að moka stíga samkvæmt forgangskorti sem sjá má hér.
Þegar þetta er skrifað eru allar götur í fyrsta forgangi færar og er áfram unnið samkvæmt forgangskortinu. Þegar búið er að moka götur í forgangi verður farið í að moka íbúðargötur.
Óskað er eftir þolinmæði og tillitssemi í tilkynningunni, ljóst sé að það muni taka nokkurn tíma að hreinsa götur og stíga bæjarins eftir snjókomu síðustu daga.