Fara í efni
Íþróttir

Slóvakískur leikmaður til SA Víkinga

Marek Vybostok, nýr leikmaður karlaliðs Skautafélags Akureryar í íshokkí. Mynd: SA.

Hokkídeild Skautafélags Akureyrar hefur samið við 19 ára sóknarmann frá Slóvakíu, Marek Vybostok, um að leika með karlaliði félagsins á komandi tímabili. Fram kemur í tilkynningu félagsins að Marek sé 19 ára kraftmikill og marksækinn sóknarmaður. Hann kemur til SA Víkinga frá ungmennaliði HC Detva í Slóvakíu, en hefur einnig spilað í Svíþjóið, meðal annars með ungmennaliði Sollentuna HC.

Hokkídeildin tilkynnti á dögunum um kanadískan markmann, Tyler Szturm, sem einnig gengur til liðs við SA Víkinga. Keppni er nú þegar hafin á Íslandsmótinu, Hertz-deildinni, en fyrsti leikur karlaliðs SA verður gegn Fjölni í Egilshöllinni á laugardag.