Fara í efni
Mannlíf

Skuggabani – nýtt lag frá Tonnataki

Tonnatak, frá vinstri: Daníel Starrason, Kristján Pétur Sigurðsson Haukur Pálmason og Þorsteinn Gíslason.

Sólin er lágt á lofti en Skuggabani er kominn á kreik, segir í tilkynningu frá hljómsveitinni Tonnataki. Skuggabani er nýjasta afurð  sveitarinnar, sem hefur nokkuð jafnt og þétt komið út nýjum lögum á undanförnum árum og árið 2025 verður ekki skilið útundan, að sögn.

„Þó hljómsveitin forðist að skilgreina tónlist sína nánar en sem pönk og ræflarokk, þá verður ekki annað hægt að segja að í þessu lagi gæti öflugra þungarokksáhrifa. Frumdrög lagsins urðu til hjá bassaleikara sveitarinnar, Þorsteini Gíslasyni og í ársbyrjun 2022 varð til texti úr smiðju Kristjáns Péturs Sigurðssonar og lagið fór að mótast. Með þrotlausum æfingum fór lagið að slípast til og varð svo að það var flutt á öllum tónleikum hljómsveitarinnar á árinu 2024. Að lokum þótti lagið fullæft og var tekið upp í desember það ár,“ segir í tilkynningu frá Tonnataki.

„Lagið er enn ein varðan í vegferð hljómsveitarinnar að láta þann draum rætast að gefa út hljómplötu, jafnvel á árinu 2025. Hljómsveitin var stofnuð árið 2015 og fagnar því 10 ára afmæli í ár, en hefur starfað í núverandi mynd frá árinu 2020.“

Tonnatak skipa Kristján Pétur Sigurðsson söngvari, bassaleikarinn Þorsteinn Gíslason, Haukur Pálmason trommuleikar og Daníel Starrason gítarleikari. Upptökustjórn og hljóðblöndun var í höndum Hauks Pálmasonar.

Skuggabani á Apple Music

Skuggabani á YouTube

Skuggabani á Spotify