Fara í efni
Fréttir

Skemmdarverk á skálanum í Fálkafelli

Myndir sem teknar voru í morgun, af skála Skátafélagsins Klakks í Fálkafelli. Myndir: Sigríður Ragnarsdóttir

Það var ekki falleg aðkoma þegar útivistarfólk kom upp í Fálkafell í morgun, en einhver hafði brotið rúðu og skemmt hurðina á skálanum með stórum steini. Ekki er enn vitað hvort frekari skemmdir séu innandyra eða hvort eitthvað hafi verið tekið. 

Það var Sigríður Ragnarsdóttir sem lét vita af skemmdarverkunum með þessum myndum, inni á Facebook síðunni 100 ferðir á Fálkafell

Ef lesendur vita eitthvað um málið er bent á að hafa samband á klakkur@klakkur.is