Skálmöld og Hymnodia með tónleika í Hofi
Þungarokkshljómsveitin Skálmöld og akureyrski kammerkórinn Hymnodia sameina krafta sína á laugardaginn kemur á tvennum tónleikum í Hofi. Uppselt er á tónleika sem hefjast kl. 21.00 og því voru aðrir settir á dagskrá klukkan 17.00.
Tónleikarnir eru byggðir á verkefni Skálmaldar frá því í nóvember á síðasta ári en þá lék sveitin allar sex hljóðversplötur sínar á þremur kvöldum í Eldborgarsal Hörpu í Reykjavík, ásamt Hymnodiu.
Á tónleikunum í Hofi verður flutt brot af því besta, ef svo má segja, frá kvöldunum í Hörpu. „Eftir að hafa æft upp hvert einasta lag af 6 plötum hljómsveitarinnar og flutt á þremur stórkostlegum kvöldum í Eldborg væri synd og sóun að henda öllum þessum æfingum út um gluggann,“ segir í tilkynningu frá hljómsveitinni. „Því bjóða bandið og kórinn nú upp á rjómann af þessu öllu saman á einni kvöldstund með öllu tilheyrandi. Textum verður varpað upp á tjald, aldurstakmark ekkert, varningur til sölu og allt eins og best verður á kosið. Þetta verður gaman!“
Auk Hymnodiu stíga þau Edda Tegeder og Baldvin Kristinn Baldvinsson á stokk með Skálmöld þar sem þau túlka Hel og Níðhögg, segir jafnframt í tilkynningunni.