Fréttir
Sjö í úrslit – viltu verða kosningastjóri fugls?
19.08.2022 kl. 14:00
Sjö fuglar komust í úrslit í forvali kosningar um fugl ársins hér á landi. Fugalvernd stendur fyrir kosningunni og leitar nú að kosningastjórum fyrir hvern fugl; þeir óska þess nú að fá byr undir báða vængi í kosningabaráttunni, eins og það er orðað í tilkynningu!
Kosið verður á milli þessara tegunda:
- Auðnutittlingur
- Himbrimi – kominn með kosningastjóra
- Hrafn
- Hrossagaukur
- Jaðrakan
- Kría
- Maríuerla
Þeir sem hafa áhuga á að gerast kosningastjórar eru beðnir um að senda línu á netfangið fuglarsins@fuglavernd.is fyrir næsta þriðjudag, 23. ágúst, og taka fram hvaða fugli viðkomandi hefur áhuga á að koma á framfæri til 5. september þegar kosning hefst.
Frekari upplýsingar er að finna hér – kosning fer svo fram rafrænt hér dagana 5. til 12. septemberog sigurvegari verður kynntur 16. september, á Degi íslenskrar náttúru.