Sigrún snýr aftur með Matargjafir fyrir jólin
Sigrún Steinarsdóttir hefur tilkynnt að hún muni snúa aftur með Matargjafir á Akureyri og nágrenni núna fyrir jólin og verða það 11. jólin hennar með þetta verkefni. Sigrún tilkynnti þetta á Facebook-síðu Matargjafanna fyrr í dag. Þar segir hún meðal annars að þar sem hún virðist ekki geta slitið sig frá Matargjöfum hafi hún ákveðið að halda áfram í breyttri mynd.
Aðalbreytingin er sú að miðstöð Matargjafanna verður ekki við heimili Sigrúnar eins og undanfarinn áratug heldur er hún að vinna í því að fá húsnæði, án þess þó að þau framlög sem berast Matargjöfunum fari í að borga leigu, rafmagn eða hita því hún vill að allur sá peningur fari til skjólstæðinga Matargjafanna. Úthlutun hefst í lok nóvember með jóladagatölum, en sjálf jólaúthlutunin hefst ekki fyrr en um miðjan desember.
Opnað verður fyrir innlagnir á reikning Matargjafanna á morgun, þriðjudaginn 5. nóvember. Hún kveðst vonast til að þau sem voru með mánaðarleg innlegg haldi því áfram því án þeirra sé ekki hægt að halda úti þessu verkefni.
- Reikningur: 1187 - 05 - 250899
- Kennitala: 670117-0300
Matargjafir munu starfa í breyttri mynd
Hér eru helstu atriði sem Sigrún setti fram á Facebook-síðunni um fyrirkomulagið á verkefninu fyrir jólin:
- Matargjafir verða ekki við heimili mitt heldur er ég að vinna í því að fá húsnæði. Ég er ekki tilbúin að borga leigu, rafmagn, hita og þ.h. af þeim peningum sem þið eruð að safna fyrir þau sem ekkert eiga og fer því allur sá peningur í skjólstæðinga Matargjafa.
- Matargjafir verður rekin af sjálfboðaliðum og fá skjólstæðingar tíma þar sem þeir geta óskað eftir aðstoð.
- Sama fyrirkomulag verður á eins og undanfarin ár, þeir sem gefa og þeir sem þiggja koma ekki á sama tíma.
- Í enda nóvember og byrjun desember verður byrjað að skrá niður á jólalistann (það verður auglýst síðar), fólk getur sótt um, sent inn ábendingar um einstakling eða fjölskyldur í vanda og styrkt einstakling eða fjölskyldu beint (þá mun ég eða sjálfboðaliði hafa milligöngu).
- Matargjafir vantar tölvu, prentara, síma og áskrift af síma og fer ég í það að hafa samband við fyrirtæki um styrk fyrir því. Ef þið þekkið eitthvað til hjá fyrirtækjum eða viljið sjálf styrkja þá er öll aðstoð vel þegin.
- Ég ætlað að útbúa blað sem verður sent á fyrirtæki fyrir þessi jól og ef þið getið aðstoðað mig get ég sent ykkur blað sem þið getið sent áfram.
- Einungis verður hægt að hafa samband eins og er á gmaili Matargjafa, matargjof@gmail.com, ég bið ykkur um að virða það.
Í lokin skrifar Sigrún: „Ég vil þakka ykkur það traust sem þið hafið sýnt mér þessi rúmlega 10 ár sem við höfum starfað saman, það er ómetanlegt að hafa fólk sem stendur þétt við bakið á mér, ykkar vegna mun ég halda áfram því það eruð þið sem gefið mér kraftinn til þess. Hlakka til að starfa áfram með ykkur.“