Fara í efni
Mannlíf

Síðasta helgin í Ævintýragarði Hreins

„Trúlega heimtar sumt af þessu kóngafólki nýjar flíkur fyrir næsta sumar eða nýjar kórónur enda þetta fólk vant því að láta alþýðumanninn snúast í kringum sig,“ segir í tilkynningu Hreins Halldórssonar um lokun Ævintýragarðsins.

Hreinn alþýðumaður, eða Hreinn Halldórsson alþýðulistamaður, mun loka Ævintýragarðinum sínum frá og með mánudeginum 16. september. Næstu dagar eru því síðasta tækifærið þetta sumarið til að njóta þess sem Hreinn hefur skapað og stillt svo skemmtilega upp í bakgarðinum hjá sér í Oddeyrargötu 17. Af tilkynningu frá Hreini má þó ráða að hér sé ekki um endanlega lokun að ræða, aðeins vetrarlokun og vonandi spretta ævintýraverur Hreins aftur fram í garðinum með vorinu, sumar ef til vill eitthvað endurbætta.

Í tilkynningunni kemur fram að aðsókn gesta hafi verið mjög góð, um það vitni þrjár útfylltar gestagækur. Hann segir umgengni gesta hafa verið til fyrirmyndar, eins og ávallt, sem sýni að hægt sé að treysta fólki til að ganga vel og snyrtilega um svæði þar sem aðgangur er ókeypis og ekkert eftirlit. Gestir hafi auk þess virt það hvenær garðurinn hefur verið opinn, en það hefur verið frá tíu á morgnana til átta að kveldi. 

„Prinsessur, prinsar, drottningar, dvergar og aðrar persónur í Ævintýragarðinum fara því ánægðar inn í hús til vetrardvalar þar sem tíminn mun verða nýttur til að yfirfara og laga það sem hefur látið á sjá í sumar. Trúlega heimtar sumt af þessu kóngafólki nýjar flíkur fyrir næsta sumar eða nýjar kórónur enda þetta fólk vant því að láta alþýðumanninn snúast í kringum sig,“ segir einnig í tilkynningu Hreins.

Skessan Króknefna gætir garðsins í vetur

„Þrátt fyrir að flestar persónur Ævintýragarðsins fari inn í hús til vetrardvalar stendur ekki öllum það til boða. Skessunni Króknefju er ekki boðið inn enda er hún vön að standa úti í öllum veðrum og mun gæta garðsins í vetur og bíða þolinmóð eftir næsta sumri. Í hennar huga er hún drottning fjallanna þó mannfólkið sjái hana ekki í því ljósi en sannarlega mun hún drottna yfir Ævintýragarðinum í vetur,“ segir Hreinn Halldórsson.