Segir Ingu og Guðmund virðast siðblind
Þorsteinn Hjaltason lögmaður á Akureyri segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að ásakanir á hendur Jóni bróður hans, frambjóðanda Flokks fólksins á Akureyri í síðustu bæjarstjórnarkosningum, hafi verið óljósar og að ekkert hafi verið fundið að framkomu hans og oddvita flokksins.
Þá segir Þorsteinn að formaður flokksins, Inga Sæland, og varaformaðurinn, Guðmundur Ingi Kristinsson, séu blindir á góða siði, „þ.e. virðast siðblindir.“ Þorsteinn segir slíkt yfirleitt smitast niður til undirsátanna „því ella fá þeir ekki að vera með. Ég held hins vegar að flestir aðrir sjái, að þessi framkoma er alls ekki við hæfi,“ segir Þorsteinn, og að framferði þeirra beri að fordæma harðlega. Þá megi fleiri skammast sín.
Málið sem vísað er til snýst um að þrjár konur í Flokki fólksins á Akureyri sökuðu ónefnda karlaforystu um einelti, andlegt ofbeldi og kynferðislegt áreiti.
Þorsteinn segir fjölmiðla ekki verið í neinum vandræðum með að skilgreina hver „karlaforystan“ væri enda hlytu það að vera karlar í efstu sætum listans, Brynjólfur Ingvarsson oddviti og Jón Hjaltason sem skipaði þriðja sætið. Þeir hafa nú báðir sagt skilið við flokkinn en Brynjólfur situr áfram í bæjarstjórn sem óháður fulltrúi og Jón í nefndum, sömuleiðis sem óháður.
„Í sex daga var fjallað um málið og þessir tveir engdust við að reyna að verja sig gegn alvarlegum ásökunum en svo óljósum að erfitt var að henda reiður á málinu og bera hönd fyrir höfuð sér,“ skrifar Þorsteinn.
Hann segir að lengi hafi margir þurft að þola mikinn órétt í hljóði því ekki hafi verið hlustað ef reynt var að kvarta yfir kynferðislegu áreiti en #metoo byltingin hafi síðan leitt til þess að þolendur fengu vopn í hendurnar.
„Vopnið er heilagt og ber að koma fram við það af virðingu. Það er grafalvarlegt mál þegar það er vanhelgað eða slævt, og spellvirki unnin á því, með að misnota það eins og gert var í þessu máli, þegar það var notað af valdagræðgi og yfirgangi við pólitískar hreinsanir í Flokki fólksins. Þetta framferði ber að fordæma harðlega.“
UPPFÆRT - Akureyri.net hefur nú fengið greinina í heild til birtingar. Smellið hér til að lesa hana.