Sandra María – mörg eftirminnileg mörk
Sandra María Jessen skoraði tvívegis í 4:1 sigri á Stjörnunni í Garðabæ í gær, í Bestu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu, eins og Akureyri.net greindi frá. Fyrra markið var það eitt hundraðasta sem hún skorar í deildinni og mörkin eru því orðin alls 101, í 161 leik.
Sandra María er fyrsti Akureyringurinn sem brýtur 100 marka múrinn í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu með mörkum fyrir Akureyrarlið. Enginn annar hefur reyndar komist nálægt því, en Rakel Hönnudóttir, fyrrverandi fyrirliði Þórs/KA, gerði 125 mörk í efstu deild á glæsilegum ferli; 74 þeirra fyrir Þór/KA en 51 fyrir Breiðablik.
Full ástæða er til að líta yfir farinn veg á þessum sögulegu tímamótum og rifja upp nokkur merkileg augnablik á ferli Söndru Maríu Jessen, þeirrar snjöllu knattspyrnukonu.
_ _ _
- EFTIRMINNILEGASTA MARKIÐ?
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Eftirminnilegasta mark Söndru María í deildarkeppninni er líklega fyrra mark Þórs/KA í 2:0 sigri á FH á Þórsvellinum, í lokaumferð Íslandsmótsins 28. september 2017. Þór/KA varð að vinna til að verða Íslandsmeistari en lengi vel gekk hvorki né rak.
Þungbúið var, hellidemba og kalt og Þór/KA átti í miklu basli með að skapa færi gegn virkilega sterkum varnarmúr FH. Markalaust var allt þar til um það bil korter var eftir. Þá braut Sandra María ísinn; Anna Rakel Pétursdóttir sendi inn á vítateig af vinstri kantinum og Sandra María náði að teygja sig með tilþrifum í boltann, eins og sjá má á myndinni að ofan, og skora. Anna Rakel í fjarska fyrir miðri mynd.
Gífurlegur fögnuður braust út, bæði innan vallar, á varamannabekknum og á meðal áhorfenda. Leikmenn Þórs/KA fagna hér að neðan. Það var svo hin frábæra Stephany Mayor sem gulltryggði sigurinn og Íslandsmeistaratitilinn með öðru marki, aðeins fjórum mínútum eftir að Sandra skoraði.
_ _ _
- FYRSTA MARKIÐ
Sandra var 16 ára þegar hún skoraði í fyrsta sinn í efstu deild Íslandsmótsins. Hún gerði þá fyrsta markið í 4:2 sigri á Breiðabliki í Kópavogi, 28. júní 2011. Hér má sjá úrklippu úr Morgunblaðinu.
_ _ _
Mynd: Skapti Hallgrímsson
- 50. MARKIÐ
Sandra skorar 50. markið í efstu deild á myndinni að ofan. Þetta var síðasta markið í 4:0 sigri á Val á Þórsvellinum 6. september árið 2016.
_ _ _
- 100. MARKIÐ
Fyrra markið sem Sandra María gerði í 4:1 sigrinum á Stjörnunni í Garðabæ í gær. Markið kom á 30. mínútu. Agnes Birta Stefánsdóttir skaut að marki langt utan af velli og Sandra stýrði boltanum rétta leið úr miðjum vítateignum.
_ _ _
Sandra María gerði tvö mörk í báðum leikjunum gegn KR sumarið 2015. Hér fagna leikmenn Þórs/KA seinna markinu í seinni leiknum (2:0 á heimavelli). Sandra lengst til vinstri, þá Gígja Valgerður Harðardóttir, Karen Nóadóttir, Anna Rakel Pétursdóttir, Andrea Mist Pálsdóttir og Ágústa Kristinsdóttir. Mynd: Skapti Hallgrímsson
- TVÖ MÖRK Í LEIK
Sandra hefur 14 sinnum gert tvennu í einum og sama leiknum. Það gerði hún fyrst 10. júní 2012, árið sem Þór/KA varð Íslandsmeistari hið fyrra sinni. Einu sinni bætti hún reyndar um betur og gerði þrjú mörk í leik það sumar.
Hér er listi yfir tveggja marka leikina.
2012
- 10. júní, Afturelding - Þór/KA 0:4
- 3. júlí, Selfoss - Þór/KA 2:6
- 10. júlí, Þór/KA - Fylkir
- 9. ágúst, Þór/KA - FH 6:0
2013
- 1. júlí, ÍBV - Þór/KA 3:2
- 13. ágúst, Þór/KA - HK/Víkingur 3:1
- 11. september, Breiðablik - Þór/KA 1:5
- 14. september, Þór/KA - ÍBV 3:1
2015
- 1. júní, KR - Þór/KA 2:4
- 11. ágúst, Þór/KA - KR 2:0
2022
- 23. maí, ÍBV - Þór/KA 5:4
- 14. september, Þór/KA - ÍBV 3:3
2024
- 2. maí, Þór/KA - Þróttur 2:1
- 15. júní, Stjarnan - Þór/KA 1:4
_ _ _
Sandra María fagnar þriðja marki sínu í 5:0 sigri á Grindavík 16. júní 2017. Í dag eru sem sagt nákvæmlega sjö ár frá þessum leik. Þór/KA varð Íslandsmeistari þetta ár. Mynd: Skapti Hallgrímsson
- ÞRJÚ MÖRK Í LEIK
Sandra María hefur fjórum sinnum gert þrjú mörk í einum og sama leiknum í efstu deild Íslandsmótsins.
- 4. september 2012, Þór/KA – Selfoss 9:0
- 18. maí 2016, Þór/KA – ÍA 4:0
- 16. júní 2017, Þór/KA – Grindavík 5:0
- 5. maí 2018, Grindavík – Þór/KA 0:5
_ _ _
Sandra María eftir að hún gerði fjórða markið gegn FH í Hafnarfirði fyrr í sumar. Mynd: Skapti Hallgrímsson
- FJÖGUR MÖRK Í LEIK
Sandra María hefur einu sinni gert fjögur mörk í leik í efstu deild Íslandsmótsins. Það var fyrr í sumar þegar hún gerði öll mörkin í 4:0 sigri á FH á heimavelli Hauka í Hafnarfirði.
- 27. apríl 2024, FH – Þór/KA 0:4
Sandra María fjórða markinu gegn FH í sumar ásamt Huldu Ósk Jónsdóttur. Mynd: Skapti Hallgrímsson
_ _ _
- FYRSTA LANDSLIÐSMARKIÐ
Sandra María á 42 A-landsleiki að baki og hefur gert sex mörk. Það fyrsta skoraði Sandra 16. júní árið 2012, síðasta markið í 3:0 sigri á Ungverjum á Laugardalsvelli, í undanriðli Evrópumótins. Hún kom inn á undir lokin og skoraði með sinni fyrstu snertingu! Lýsinguna á markinu má sjá á meðfylgjandi úrklippu úr Morgunblaðinu.
_ _ _
- AFTUR FYRSTA SNERTING
Annar landsleikur Söndru María var vináttuleikur Skota og Íslendinga (1:1) 4. ágúst 2012 á Cappielow Park, heimavelli Greenock Morton í Skotlandi.
Aftur kom hún inná sem varamaður, að þessu sinni á 72. mínútu, og aftur skoraði Sandra María í fyrsta skipti sem honum kom við boltann í leiknum! Úrklippan hér að neðan er úr Morgunblaðinu.
_ _ _
- „ERFITT AÐ LESA“ SÖNDRU
Þóra Björg Helgadóttir sagði við Morgunblaðið eftir leikinn í Skotlandi að Sandra væri alveg ísköld og langt væri síðan hún hefur séð svona framherja. „Ég sjálf hef mætti henni á æfingu og það er rosalega erfitt að lesa hana,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn.
_ _ _
- MÖRK OG LEIKIR
Sandra María Jessen einungis leikið með Þór/KA hér á landi. Hér má sjá leikjafjölda og hve mörg mörk hún hefur skorað í efstu deild.
- 2011 – 15 – 2
- 2012 – 18 – 18
- 2013 – 14 – 9
- 2014 – Sandra sleit krossband í hné í lok mars og missti af öllu keppnistímabilinu.
- 2015 – 18 – 13
- 2016 – 18 – 9
- 2017 – 15 – 8
- 2018 – 18 – 14
- Sandra María lék með Bayer Leverkusen 2019, 2020 og 2021.
- 2022 – 18 – 8
- 2023 – 19 – 8
- 2024 – 8 – 12
_ _ _
Myndir: Skapti Hallgrímsson
- SUMARIÐ 2012
Félag áhugafólks um kvennaknattspyrnu úthlutaði verðlaunum í byrjun júní árið 2012, m.a. var Sandra María útnefnd „bjartasta vonin“. Vinstri myndin var tekin þegar hún fékk afhenta viðurkenningu vegna þess. Myndin til hægri er úr 2:0 sigurleik Þórs/KA á Breiðabliki 4. júní. Jafnöldrurnar Sandra María og Elín Metta Jensen, leikmaður Vals, báðar fæddar snemma árs 1995 og því 17 ára, urðu markahæstar í deildinni þetta sumar, gerðu báðar 18 mörk í 18 leikum.