Mannlíf
Saga gífurviða – elstu menjar í Suður-Ameríku
29.01.2025 kl. 11:11
Sigurður Arnarson fjallar um ættkvísl gífurviða – Eucalyptus – í pistli dagsins í röðinni Tré vikunnar. Fjallað hefur verið um þessi tré annað veifið á síðustu misserum, í dag er umfjöllunarefnið þróunarsaga tegundarinnar og hitt og þetta sem henni tengist. Hér setur Sigurður punkt aftan við umfjöllun um ættkvíslina í bili, en boðar pistil síðar um að minnsta kosti eina tegund hennar.
Hann segir: „Gífurviðir, Eucalyptus L'Hér., vaxa fyrst og fremst í Ástralíu. Þeir eru af mörgum taldir einkennistré þeirrar fjarlægju heimsálfu sem við köllum Eyjaálfu. Það kemur því eflaust mörgum á óvart að elstu menjar um ættkvíslina eru ekki þar að finna, heldur í Suður-Ameríku.“
Pistill dagsins: Saga gífurviða