Fara í efni
Íþróttir

SA tapaði í tvígang fyrir Fjölni um helgina

Frá leik SA og Fjölnis fyrr í vetur. Ljósmynd: Þórir Tryggvason

Íslandsmeistarar Skautafélags Akureyrar í íshokkí kvenna töpuðu í tvígang fyrir Fjölni í Reykjavík um helgina. Fjölnir vann fyrri leikinn 3:1 í gærkvöldi og þann seinni 4:2 í morgun.

Stelpurnar okkar eru þrátt fyrir töpin enn á toppi Íslandsmótsins, Hertz-deild­ar­inn­ar, með 33 stig en Fjöln­is­kon­ur hafa nú 27 stig að lokn­um 13 um­ferðum.

Magda­lena Su­lova og Herborg Geirsdóttir skoruðu fyrir SA í morgun en Katrín Björnsdóttir í gær.