Íþróttir
SA á níu leikmenn í karlalandsliðinu
13.12.2023 kl. 06:00
Mynd: ihi.is.
Níu leikmenn frá Skautafélagi Akureyrar og þrír SA-menn sem spila erlendis eru í karlalandsliði Íslands í íshokkí sem mætir Búlgaríu, Eistlandi og Suður-Afríku í undankeppni Ólympíuleikanna á næstu dögum.
Riðill Íslands verður spilaður í Skautahöllinni í Laugardal og ferðalagið því óvenju stutt fyrir Akureyringana miðað við það sem þeir hafa oft þurft að leggja á sig í landsliðsverkefnum sem fram hafa farið víða um heim.
Leikmenn Skautafélags Akureyrar í landsliðinu:
- Andri Már Mikaelsson
- Arnar Helgi Kristjánsson
- Bjarki Þór Jóhannesson
- Jakob Jóhannesson
- Jóhann Már Leifsson
- Ormur Karl Jónsson
- Orri Blöndal
- Unnar Rúnarsson
- Uni Steinn Sigurðarson Blönda
SA-menn í landsliðshópnum sem spila erlendis
- Gunnar Arason, Osby IK í Svíþjóð
- Halldór Skúlason, Sölvesborg IK í Svíþjóð
- Heiðar Gauti Jóhannsson, Osby IK í Svíþjóð
Leikir Íslands
- Fimmtudagurinn 14. desember
19:00 Ísland - Suður Afríka - Föstudagurinn 15. desember
19:00 Ísland - Búlgaría - Sunnudagurinn 17. desember
17:00 Eistland - Ísland