Fréttir
RÚV: málið tengist meintri nauðgun
19.07.2022 kl. 12:37
Vitni sem Lögreglan á Norðurlandi eystra auglýsti eftir í gær gaf sig fram fljótlega eftir að tilkynningin birtist á Facebook síðu lögreglunnar.
„Vitnið sem leitað er að er kona með sítt hár og var hún klædd í kimono með blómamynstri. Hún var í samskiptum við konu og karlmann á efri hæðinni þegar atvikið sem til rannsóknar er átti sér stað,“ sagði í tilkynningunni. RÚV segir málið tengjast rannsókn á meintri nauðgun aðfararnótt 29. maí í vor.
Smellið hér til að lesa frétt RÚV