Fara í efni
Mannlíf

Reyna að fá 50 ára mótor Bangsa til að ganga á ný

Tíu vélstjórnarnemar í Verkmenntaskólanum á Akureyri (VMA) hófust í vikunni handa við skemmtilegt verkefni sem þeir munu fást við næstu mánuði: að að rífa í sundur bensínmótor Bangsa, hálfrar aldar gamals snjóbíls í eigu Sigurðar Baldurssonar, og freista þess að fá hann til þess að ganga á ný.

Óskar Þór Halldórsson blaðamaður, umsjónarmaður heimasíðu VMA, fjallar um málið í vikunni. Það eru nemendur í áfanganum Viðhald véla og kennari þeirra, Jóhann Björgvinsson, sem glíma við þetta verkefni.

Sigurður eignaðist bílinn haustið 2021 – hér má sjá umfjöllun Akureyri.net um það á sínum tíma. Hann hefur unnið að því síðan að gera bílinn upp.

Nemendurnir og Jóhann tóku mótorinn úr Bangsa í vikunni og Jóhann er bjartsýnn á að unnt verði fá mótorinn til þess að ganga á nýjan leik, að því er segir á vef VMA.

Mótorinn úr Bangsa, bensínmótor af Chrysler gerð.

„Baldur Sigurðsson, faðir Sigurðar Baldurssonar, átti og gerði Bangsa út til jöklaferða á Vatnajökli yfir sumarið og einnig var hann m.a. notaður í ýmsar vetrarferðir á Akureyri og í nágrenni. Bangsi er af gerðinni Bombardier, árgerð 1973, en bensínmótorinn er af gerðinni Chrysler Industrial. Eftir að hætt var að nota Bangsa í jöklaferðum lá leið hans vestur í Staðarskála í Vestur-Húnavatnssýslu og síðar var hann í nokkur ár á Samgönguminjasafni Skagafjarðar. En Bangsa eignaðist Siggi á haustmánuðum 2021 og er ætlun hans að gera hann upp, enda sögulegur gripur. Mikilvægur liður í því er vitaskuld að gera upp mótorinn, sem hefur lengi verið fastur,“ segir í umfjöllun Óskars Þórs.

Upplagt námsverkefni

„Siggi nefndi einhvern tímann við mig hvort ég gæti gert upp mótorinn í Bangsa. Ég orðaði þetta svo við kennarana hér í vélstjórn og við vorum sammála um að það væri upplagt námsverkefni fyrir nemendur að gera mótorinn upp. Í síðustu viku fórum við og kíktum á aðstæður og í gær fórum við og tókum mótorinn úr Bangsa og nú er hann kominn hingað inn á gólf. Á þriðjudögum núna á vorönninni verður verkefni okkar að rífa mótorinn í sundur og greina hvað veldur því að hann hefur verið fastur,“ segir Jóhann Björgvinsson.

„Þetta er fínasta verkefni fyrir nemendur enda hafa þeir ánægju af svona ati. Ég er bjartsýnn á að við komum mótornum í gang en við getum ekki fundið út úr því fyrr en hann verður rifinn í sundur. Það er erfitt að segja til um hvað hefur valdið því að mótorinn er fastur, en bíllinn hefur lengi staðið og ég tel líklegast að það hafi safnast raki inn á mótorinn og myndast ryð inn í cylendrunum. En þetta getum við ekki sagt til um fyrr en við sjáum inn í mótorinn. Það er mjög virðingarvert að Siggi vilji gera bílinn upp enda merkilegur og sögufrægur gripur. Mér finnst frábært að við getum lagt okkar lóð á vogarskálarnar í þessu verkefni,“ segir Jóhann.

Vetrarferðir á Glerárdal

Sigurður Baldursson er hæstánægður að nemendur taki þetta verkefni að sér. Hann er kominn á fullt við að gera Bangsa upp og er nú þegar búinn að verja um 400 vinnustundum í verkefnið. Sigurður er þess fullviss að hann muni geta notað Bangsa í vetrarferðum með ferðamenn á Glerárdal í framtíðinni, rétt eins og faðir hans gerði á Vatnajökli forðum daga, en Sigurður hefur undanfarin ár boðið upp á ævintýraferðir á vélsleðum fyrir ferðamenn á Glerárdal, segir Óskar Þór á vef MA.