Fara í efni
Menning

Rebekka Kühnis sýnir í Kaktus

Rebekka Kühnis opnar sýninguna BEYOND í Kaktus í Listagilinu á morgun, föstudaginn 28. júní. Sýningin verður opin fram á sunnudag. 

Í tilkynningu um sýninguna segir að sýningin BEYOND samanstandi af seríu verka í blandaðri tækni sem sýna hluta sprengdra blokkarbygginga. „Í stað þess að horfa á veggi og glugga sjáum við inn í herbergi, heimili sem voru áður vistleg og innileg og áfram inn í svarthol. Málverkin eru viðbrögð við óhug mínum og skilningsleysi. Formlega séð er einnig um að ræða könnun á dýpt og svarta litnum, sem gjarnan er tengdur fjarveru eða tómleika, en í minni skynjun tengist hann einnig upphafi og umbreytingu.“

Á sýningunni eru sýnd verk frá árinu 2009 ásamt nokkrum verkum frá árinu 2024. Þrívíddarmálverkin sem viðbragð við ljósmyndum fjölmiðla af stríðinu í Líbanon á sínum tíma og verk á tré sem viðbragð við stríðsátökum nútímans.

Rebekka Kühnis (f. 1976) er frá Windisch í Sviss og útskrifaðist með meistaragráðu í listkennslufræðum frá Hochschule der Künste í Bern. Síðan hefur hún starfað sem listakona og myndlistarkennari. Hún flutti til Akureyrar 2015.

Sýningin verður opin yfir helgina:

  • Föstudagur 28. júní. Opnun kl. 17-19
  • Laugardagur 29. júní kl. 14-18
  • Sunnudagur 30. júní kl. 14-17