Rannsókn í byrlunar- og símamáli hætt
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur hætt rannsókn máls „er varðar meinta byrlun, afritun á upplýsingum af síma einstaklings og dreifingu á kynferðislegu myndefni. Brotið var tilkynnt lögreglu þann 14.05.2021,“ eins og segir í ítarlegri tilkynningu sem birt var á Facebook síðu embættisins fyrr í dag.
Um er að ræða mál sem Páll Steingrímsson skipstjóri á Akureyri tilkynnti um. Á meðan Páll lá á spítala var síma hans stolið og komið til fjölmiðils. Síðar voru birtar fréttir byggðar á upplýsingum úr tölvupóstum Páls.
Sjö fengu réttarstöðu sakbornings við rannsókn þessa máls. Fyrrverandi eiginkona Páls Steingrímssonar, sem ekki hefur verið nafngreind, og sex blaðamenn: Aðalsteinn Kjartansson, Arnar Þór Ingólfsson, Þóra Arnórsdóttir, Þórður Snær Júlíusson, Ingi Freyr Vilhjálmsson og Arnar Þórisson.
Þrennskonar sakarefni var til rannsóknar, skv. tilkynningu lögreglunnar. Allir þættir hafi beinst að einum sakborninga (fv. eiginkonu Páls) en einn að öðrum sakborningum.
1. Líkamsárás, byrlun
Lögregla segir að fyrir liggi að ónefnda konan hafi sett lyf út í áfengi sem Páll Steingrímsson drakk. Hann veiktist alvarlega nokkrum klukkustundum síðar en ekki hafi tekist að sanna „orsakasamband á milli byrlunar á lyfjum og veikinda brotaþola með óyggjandi hætti.“ Engin gögn í málinu hafi gefið lögreglu tilefni til að gruna aðra sakborninga um að hafa átt þátt í byrluninni.
2. Kynferðisleg áreitni
Lögregla telur líklegt að konan ónefnda yrði sakfelld fyrir að dreifa kynferðislegu myndefni af eiganda símans. „Brotið felst í því að sakborningur sendi sjálfum sér kynferðislegt myndefni af eiginmanni sínum úr síma hans.“ Vegna veikinda konunnar leiki þó vafi á hvort hún hafi verið sakhæf á verknaðarstundu. „Sakborningur hefur hafnað beiðni um að undirgangast sakhæfismat og því hefur verið ákveðið að hætta rannsókn á þessum þætti málsins.“
Ekki tókst að sanna hver afritaði símann, hvernig og hver afhenti öðrum upplýsingar um einkamálefni brotaþola.
Yfirlýsing embættis Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er svohljóðandi í heild:
Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hefur tekið ákvörðun um að hætta rannsókn í máli er varðar meinta byrlun, afritun á upplýsingum af síma einstaklings og dreifingu á kynferðislegu myndefni. Brotið var tilkynnt lögreglu þann 14.05.2021.
- Það liggur fyrir að einn sakborninga játaði að hafa sett lyf út í áfengi sem hann færði brotaþola og hann drakk. Nokkrum klukkustundum síðar veiktist brotaþoli alvarlega. Ekki hefur tekist að sanna orsakasamband á milli byrlunar á lyfjum og veikinda brotaþola með óyggjandi hætti. Lögreglustjóraembættið á Norðurlandi eystra telur háttsemina varða við 217. gr. almennra hegningarlaga. Að því gefnu að brotið eigi aðeins undir 217. gr. gæti brotið verið fyrnt sem dómstólar hafa þó endanlegt mat á. Ef hægt væri að sanna orsakatengsl milli byrlunar og veikinda brotaþola er ekki líklegt að ákæruvaldinu tækist að sanna ásetning sakbornings til að valda brotaþola þeim skaða sem hann varð fyrir. Þá er vísað til andlegs ástands sakbornings á verknaðarstundu og eftirfarandi veikindi hans. Af framangreindum ástæðum hefur verið ákveðið að hætta rannsókn á þessu sakarefni í málinu.
- Lögreglustjóraembættið á Norðurlandi eystra telur sakarefnið um að dreifa kynferðislegu myndefni af brotaþola sé líklegt til sakfellis á hendur einum sakborningi. Brotið felst í því að sakborningur sendi sjálfum sér kynferðislegt myndefni af eiginmanni sínum úr síma hans. Vegna veikinda sakbornings leikur vafi á um hvort hann hafi verið sakhæfur á verknaðarstundu. Sakborningur hefur hafnað beiðni um að undirgangast sakhæfismat og því hefur verið ákveðið að hætta rannsókn á þessum þætti málsins.
- Sakarefni samkvæmt 228. og 229. gr. alm. hgl. lýtur að brotum á friðhelgi einkalífs meðal annars með því að hnýsast í, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heimildarleysi skjölum, gögnum, myndefni, upplýsingum eða sambærilegu efni um einkamálefni viðkomandi. Þar er afstaða Lögreglustjóraembættisins á Norðurlandi eystra að allir sakborningar í málinu gætu hafa sýnt af sér atferli sem getur flokkast undir brot á framangreindum ákvæðum. Sérstakar aðstæður sem varða einkahagsmuni eða almannahagsmuni geta gert framangreinda háttsemi refsilausa. Augljósar refsileysisástæður gætu almennt verið þær að aðili hafi verið að skipuleggja glæp eða játa á sig alvarlegan verknað í einkagögnum en endanlegt mat um slíkt liggur hjá dómstólum. Rannsóknin beindist hins vegar aðallega að því að reyna að upplýsa hverjir afrituðu símann, hvar og hvernig það var gert. Það liggur fyrir að birtar voru fréttir upp úr einkagögnum af símtækinu s.s. tölvupóstum, skjölum og spjallþráðum spjallforrita.
- Það er mat Lögreglustjóraembættisins á Norðurlandi eystra að ekki hafi tekist að sanna hver afritaði símann, hvernig og hver afhenti öðrum upplýsingar um einkamálefni brotaþola. Þeir sem birtu fréttir upp úr gögnum símans fengu réttarstöðu sakbornings auk þeirra sem sannað er að höfðu verið í samskiptum við þann sakborning sem afhenti símann til fjölmiðla. Sakborningar sem störfuðu hjá fjölmiðlum neituðu að tjá sig hjá lögreglu og afhentu lögreglu engin gögn. Það er réttur þeirra sem hafa fengið stöðu sakbornings. Lögregla óskaði ekki eftir því við sakborninga að þeir upplýstu um heimildarmenn sína enda lá það fyrir frá upphafi rannsóknar hver heimildarmaðurinn var í máli þessu.
- Það er miður hve langan tíma rannsóknin tók en gildar skýringar eru á því. Rannsóknin var engu að síður samfelld. Veikindi eins sakbornings höfðu mikil áhrif á gang rannsóknarinnar sem og ágreiningur við sakborninga sem töldu sig ekki bera sömu skyldu og aðrir til að gefa skýrslu hjá lögreglu vegna stöðu sinnar sem blaðamenn. Fjallað var um málið á þremur dómsstigum, auk þess sem gerðar voru vanhæfiskröfur á starfsmenn embættisins sem fjallað var um á tveimur dómsstigum og töfðu þessi málaferli rannsókn málsins mikið. Málið féll ekki undir forgangsmál í samræmi við almenn fyrirmæli ríkissaksóknara auk þess sem önnur atriði höfðu áhrif á rannsóknartímann. Ekki tókst að afla fullnægjandi stafrænna gagna þar sem þeim hafði verið eytt og réttarbeiðnir sem sendar voru erlendum tölvuþjónustu fyrirtækjum hafa enn ekki skilað árangri. Það liggur fyrir að ekki hefur tekist að sanna hver afritaði upplýsingar af síma í einkaeigu og með hvaða hætti þrátt fyrir að vísbendingar séu uppi um það. Af þessum sökum sem og vegna sjónarmiða um fyrningu hefur embættið ákveðið að hætta rannsókn í þessu máli gegn öllum sakborningum.