Fara í efni
Íþróttir

Rakel Sara og Lydía framlengja við KA/Þór

Handboltakonurnar Rakel Sara Elvarsdóttir og Lydía Gunnþórsdóttir hafa báðir skrifað undir tveggja ára samning við KA/Þór og eru því samningsbundnar til vors 2027. Liðið sigraði í Grill66 deild Íslandsmótsins og leikur því á ný í deild þeirra bestu næsta vetur, Olísdeildinni.

Lydía var í lykilhlutverki hjá KA/Þór í vetur en Rakel Sara gat ekkert leikið vegna meiðsla. Hún sleit krossband í hné fyrir um það bil ári en er á góðum batavegi og sagði Akureyri.net á dögunum að hún yrði klár í slaginn þegar Íslandsmótið hefst á ný í haust.

Greint er frá tíðindunum á vef KA. Þar segir meðal annars um þær stöllur:

  • Rakel Sara, sem er uppalin hjá KA/Þór, er 22 ára og leikur í hægra horni. Hún var aðeins 15 ára gömul þegar hún kom inn í meistaraflokkslið KA/Þórs veturinn 2018-2019 og varð strax lykilmaður í liðinu. Hún var valin efnilegasti leikmaður Olísdeildar kvenna veturinn 2020-2021 þegar KA/Þór hampaði öllum titlum tímabilsins og stóð því uppi sem Íslands-, bikar- og deildarmeistari auk þess að vera Meistari meistaranna.
  • Rakel gekk í raðir norska liðsins Volda tímabilið 2022-2023 þar sem hún lék í efstu deild Noregs sem er ein sterkasta deild heims. Þá var hún einnig valin í A-landslið Íslands en þar áður var hún í lykilhlutverki með yngrilandsliðum Íslands þar sem hún keppti bæði á EM og HM og var valin í lið mótsins.
  • Rakel sneri aftur heim eftir dvölina í Noregi en varð fyrir því óláni að slíta krossband fyrir um ári síðan. Hún hefur sýnt mikinn karakter og er að koma til baka eftir þessi erfiðu meiðsli og ljóst að það verður gríðarlega mikill styrkur fyrir KA/Þór að njóta krafta hennar á ný en stelpurnar endurheimtu sæti í deild þeirra bestu á dögunum.
  • Lydía Gunnþórsdóttir, sem verður 19 ára gömul seinna á árinu, er uppalin hjá KA/Þór og hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki í meistaraflokksliði KA/Þórs undanfarin ár en Lydía lék sinn fyrsta keppnisleik aðeins 15 ára gömul.
  • Auk þess að leika með KA/Þór hefur Lydía verið fastamaður í yngrilandsliðum Íslands en hún lék meðal annars á HM í Kína á síðasta ári með U18 ára landsliðinu.
  • Lydía er gríðarlega efnilegur leikstjórnandi, með mikinn leikskilning og er auk þess frábær skotmaður. Þá býr hún yfir miklum leiðtogahæfileikum og drífur liðsfélaga sína með sér. Það eru því afar jákvæð tíðindi að Lydía verði áfram innan okkar raða og hlökkum við svo sannarlega til að fylgjast áfram með framgöngu hennar.