Fara í efni
Menning

Ragnar Hólm sýnir í Listhúsi Ófeigs

Ein vatnslitamynda Ragnars Hólm á sýningunni í Listhúsi Ófeigs.

Ragnar Hólm Ragnarsson opnar í dag, laugardag, málverkasýninguna HORFÐU TIL HIMINS í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 4 í Reykjavík.

„Í rúman áratug hefur Ragnar Hólm (f. 1962) sinnt myndlist af mikilli ástríðu og sótt námskeið hjá þekktu myndlistarfólki hér heima og erlendis,“ segir í tilkynningu um sýninguna. „Hann hefur haldið yfir 20 einkasýningar, þá fyrstu árið 2010. Vatnslitamyndir Ragnars hafa verið valdar á fjölda samsýninga evrópskra vatnslitamálara og hann hlaut nú í vor sérstaka viðurkenningu á vatnslitahátíð í Córdoba á Spáni fyrir mynd sem þar var til sýnis. Síðustu árin hafa kraftmikil og litrík olíumálverk orðið æ fyrirferðameiri í listsköpun hans.“

Á sýningunni í Listhúsi Ófeigs eru sjö vatnslitamyndir og jafnmörg olíumálverk. Ragnar málar fyrst og fremst landslag með vatnslitunum „en olíumálverkin miðla með djörfum pensilstrokum sterkum tilfinningum sem tengjast gjarnan gleði og ótta, frelsi og kvíða, friði og stríði.“

Sýning Ragnars verður opnuð kl. 14.00 í dag. Hún stendur út maí og er opin á virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá 11-16.

www.ragnarholm.art

www.facebook.com/ragnarholm.art

www.instagram.com/ragnarholm62/