Fara í efni
Fréttir

Ráða vel við verkefnið en áhyggjur af mengun

Ljósmynd: Þorgeir Baldursson.

Þrír af hverjum fjórum Akureyringa hafa áhyggjur af mengun frá skemmtiferðaskipum, en 72% telja hafnaryfirvöld ráða vel við að taka á móti skemmtiferðaskipum. Þetta er á meðal þess sem kom út úr viðhorfskönnun Rannsóknamiðstöðvar ferðamála til ferðaþjónustunnar.

FYRRI GREINAR

Í fyrirlestri á kynningarfundi Ferðamálastofu um helstu málefni sem tengjast komum skemmtiferðaskipa kynnti Eyrún Jenný Bjarnadóttir frá Rannsóknamiðstöð ferðamála helstu niðurstöður. Hér er stiklað á stóru á tölum sem viðkoma Akureyri.

  • 72% Akureyringa eru frekar eða mjög sammála þeirri fullyrðingu að hafnaryfirvöld réðu vel við að taka á móti skemmtiferðaskipum.
  • 68% Akureyringa töldu heimabyggðina sem heild ráða almennt vel við að þjónusta farþega skipanna.
  • 63% Akureyringa töldu frekar eða mjög sammála því að skemmtiferðaskip séu efnahgaslega mikilvæg fyrir heimabyggð. 
  • 34% Akureyringa telja sig verða fyrir ónæði af komum skemmtiferðaskipa og 36% íbúanna kváðust forðast ákveðna staði í heimabyggð þegar skemmtiferðaskipværu í höfn.
  • Þrír af hverjum fjórum Akureyringum hafa áhyggjur af mengun frá skemmtiferðaskipum í heimabyggð.
  • Aðeins 8% Akureyringa myndu vilja fá fleiri skemmtiferðaskip í heimsókn. 

Myndirnar hér að neðan eru skjáskot af glærum úr fyrirlestri Eyrúnar Jennýjar, en á þessum glærum má sjá samanburð á ofantöldum tölum milli Akureyringa, Ísfirðinga og Reykvíkinga. Smellið á efstu myndina til að opna glærur Eyrúnar.

Upptöku af fyrirlestri Eyrúnar Jennýjar um viðhorf landans til málefna skemmtiferðaskipanna má finna í frétt Ferðamálastofu - sjá hér