Fara í efni
Fréttir

Óvissustig vegna regns og skriðuhættu

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna mikillar rigningar á Tröllaskaga og aukinnar skriðuhættu. 

Vegagerðin hefur lokað Siglufjarðarvegi frá Hrauni að Strákagöngum vegna grjóthruns. Hjáleið um Lágheiði. Viðbragðsaðilar hafa frá því snemma í morgun verið í ýmsum verkefnum þessu tengt. Áframhaldandi rigningaspá er á svæðinu til morguns.
 
Þessi ákvörðun var tekin í framhaldi af fundi Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra með aðgerðastjórn á Norðurlandi eystra og Veðurstofu á sjöunda tímanum í kvöld.  Almannavarnadeild fylgist áfram með stöðunni og verður í sambandi aðgerðarstjórn.