Mannlíf
Öskudagur á Akureyri – MYNDIR
22.02.2023 kl. 16:00
Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Akureyrsk börn voru á ferð og flugi í morgun í tilefni öskudagsins, sungu af lífi og sál í alls kyns fyrirtækjum og stofnunum eins og áratuga hefð er fyrir í höfuðstað Norðurlands og þáðu glaðning fyrir.
Söngkeppni var á verslunarmiðstöðinni Glerártorgi þar sem var mikill fjöldi barna lagði leið sína, og þar var „kötturinn“ sleginn úr tunnunni með tilþrifum.