Mannlíf
Námskeiðið PEERS® af stað í september
09.08.2024 kl. 06:00
Akureyri. Mynd: Hilmar Friðjónsson.
Námskeiðið PEERS®, sem ætlað er hvort tveggja unglingum fæddum 2009, 2010 og 2011 og foreldrum/forráðamönnum, hefst um miðjan september. Námskeiðið getur hentað unglingum með einhverfu, ADHD, kvíða, þunglyndi eða aðra félagslega erfiðleika. Námskeiðið er á vegum Akureyrarbæjar.
Námskeiðið verður kennt vikulega í 12 vikur á mánudögum, umsóknir skulu berast í síðasta lagi 28. ágúst. Nánari upplýsingar á vef Akureyrarbæjar.
Í kynningu á námskeiðinu kemur meðal annars fram það helsta sem farið verður yfir:
- eiga viðeigandi samskipti, rafræn samskipi
- hefja og yfirgefa samræður
- standa að vel heppnuðum hittingi vina
- sýna góðan liðsanda
- takast á við ágreining
- takast á við kjaftasögur og slúður
- takast á við höfnun, stríðni og einelti
Helstu markmið námskeiðsins eru:
- Unglingurinn læri leiðir að eignast vini og viðhalda þeim
- Foreldri læri að styðja ungling í að finna viðeigandi vini
- Foreldri læri leiðir til að styrkja færni unglings til að eignast vini.
- Foreldri læri leiðir til að efla félagslegt sjálfstæði unglings.