Fara í efni
Menning

Minjasafnið fær 6,1 milljón úr safnasjóði

Ljósmynd sem Anna Schiöth tók á köldum sumardegi á Akureyri - 28. ágúst árið 1882.

Minjasafnið á Akureyri hefur hlotið 6,1 milljón króna í styrk úr safnasjóði vegna verkefna sem unnið verður að á næstu mánuðum. 

  • Sýning á ljósmyndum Önnu Schiöth – 2,2 milljónir. 
  • Skráning sérsafna - Nonnahús og Íslandskortasafn – 2,2 milljónir
  • Tuskur og aðrir ræflar - forvarsla textílgripa – 1,7 milljónir

Fram undan er til dæmis rannsóknarvinna vegna mynda Önnu Schiöth. Hún lærði ljósmyndun í Danmörku veturinn 1877 - 1878, var einn fyrsti  kvenljósmyndari á Íslandi og rak ljósmyndastofu á Akureyri samfellt í 20 ár. Haldin verður sýning á myndum þessa merka ljósmyndara (1846 - 1921) í Minjasafninu innan nokkurra missera.