Margskonar dagar hefjast í Deiglunni
Myndlistarmaðurinn Dylan Anderson, gestalistamaður Gilfélagsins í desember, opnar í dag kl. 17.00 sýninguna Margskonar dagar / Many kinds of days í Deiglunni.
Anderson, sem er frá New York, hefur dvalið í gestavinnustofu Gilfélagsins síðasta mánuðinn. Þetta er fyrsta einkasýning hans á ljósmyndum.
Spurt er í tilkynningu: Hvað er gluggi ef ekki loftið, rammað hornrétt inn? og vitnað í Água Viva, skáldsögu brasilíska rithöfundarins Clarice Lispector frá 1973.
„Sýningin Margskonar dagar samanstendur fyrst og fremst af filmu ljósmyndum sem gerðar voru á árunum 2023 og 2024. Verkið kannar þemu tenginga, skammvinna, forvitnis og ljóss, fléttað í gegnum innilegar vinjettur lífs í borginni, portrett af hundum og stækkunarblöð. Með næmni sinni og tilfinningu fyrir norðrinu gerir Dylan tilraunir með ný efni og framsetningu, sem býður upp á ótruflaðar hugleiðingar og kveikt samtöl til að finna nánd í hversdagsleikanum og hinu lífvana,“ segir í tilkynningunni.
„Dylan lauk Bachelor of Fine Arts gráðu í ljósmyndun frá Parsons School of Design árið 2023. Verkefni hans ‘Warm Vicinity’ komst á lista fyrir Landskrona Foto Residency í samvinnu við PhMuseum’s Photography Grant 2023. Dylan hefur sýnt ljósmyndir í Salmagundi Art Club & Parsons School of Design, hvorutveggja í New York borg.“
Sýningin verður opin í dag, föstudaginn 27. desember, frá 17:00 til 20:00 og helgina 28.–29. desember frá 14:00 – 17:00 báða dagana.