Mannfólkið byrjar að breytast í slím í kvöld
Tónlistarhátíðin Mannfólkið breytist í slím sem hefst í kvöld og stendur til laugardags – 25. - 27. júlí – er nú haldin í sjöunda sinn. Hátíðin er kennd við listateymið MBS sem kemur að skipulagningu hennar og hefur hún farið fram árlega síðan árið 2018.
Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika norðlensks tónlistarfólks og að skapa sterka hefð fyrir öflugri menningarhátíð utan meginstrauma á Akureyri, segir í tilkynningu frá hátíarhöldurum. „Þannig er fjölbreytileiki atriða aðalsmerki Mannfólkið breytist í slím þar sem allt áhugafólk um tónlist getur fundið eitthvað við hæfi. Einnig er lögð áhersla á atriði með líflega sviðsframkomu og þau sem starfa mitt á milli tónlistar og gjörningalistar.“
Mannfólkið breytist í slím hefur ætíð verið haldin á iðnaðarsvæðum eða innan iðnaðarrýma, fyrst á Oddeyri en síðustu þrjú árin á Óseyri. Auk þess hefur hátíðin aldrei farið fram á nákvæmlega á sama stað. „Þannig hefur hið skapandi kollektíf MBS öðlast einstaka hæfni í að breyta hráum og óhefluðum plássum í frambærileg tónleikasvæði á mettíma.“
Dagskráin stendur frá fimmtudegi til laugardags sem fyrr segir „Sem fyrr eru þær tónlistarstefnur sem heyra má þessa helgi á Óseyri jafn margar og atriðin sjálf. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar er verndari hátíðarinnar í ár. Það markar kaflaskil í sögu Mannfólkið breytist í slím þar sem þetta er í fyrsta sinn sem verndarinn kemur úr heimi stjórnmála en fyrri verndarar hafa allir verið úr hinum skapandi geira,“ segir í tilkynningunni.
„Meðal annarra hápunkta hátíðarinnar í ár er framkoma ex.girls sem hlotið hefur einróma lof fyrir nýjustu plötu sína sem kom út seint á síðustu ári auk þess sem tekknófiðludúettinn Geigen lokar fimmtudagskvöldinu með afar metnaðarfullu atriði. Einnig er vert að minnast á komu iðnaðardrungaverkefnisins Aska sem heldur sína fyrstu tónleika á Íslandi síðan 2019, raftónlistarmanninn Pitenz og hljómsveitina Spacestation sem hefur verið að gera það einkar gott undanfarið. Meðal annars akureyrsks listafólk sem tekur þátt eru Þorsteinn Kári, Brenndu bananarnir, Drengurinn fengurinn, Sót og Miomantis sem einmitt gefa út plötu sama dag og sveitin kemur fram eða 26. júlí.“
Engin miðasala er á hátíðina en gestir ráða hvort og þá hversu mikið þeir vilja styrkja verkefnið.
Dagskrá hátíðarinnar í ár
Fimmtudagur 25. júlí:
20:00 Ari Orrason
20:45 Brenndu bananarnir
21:30 Deer God22:30 Geigen
Föstudagur 26. júlí:
20:00 Miomantis
20:40 Setningarathöfn Ásthildur Sturludóttir verndari MBS 2024
21:20 Geðbrigði
22:00 Drengurinn fengurinn
23:00 Daníel Hjálmtýsson
00:00 Pitenz
Laugardagur 27. júlí
20:00 Sót
20:45 Leður
21:50 Þorsteinn Kári
22:50 aska
23:50 Spacestation
01:00 ex.girls
02:00 Helldóra
Fylgjast má með MBS og Mannfólkið breytist í slím með því að fylgja eftirfarandi hlekkjum:
Mannfólkið breytist í slím 2024 - viðburður á facebook:
https://www.facebook.com/share/RQHVDRHQ468B3TbB/
MBS á veraldarvefnum:
https://mbsskifur.is/
MBS á samfélagsmiðlum:
https://www.instagram.com/mbsskifur/
https://www.facebook.com/mbsskifur/
Samstarfs- og styrktaraðilar MBS 2024 eru: Akureyrarbær, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE, KEA, Tónlistarsjóður, Segull 67, HS Kerfi, Prentmet Oddi, Akureyri Backpackers, Aflið & Rás 2.