Fara í efni
Menning

Lokahátíð Listasumars er í Gilinu í dag

Lokahátíð Listasumars verður í Listagilinu í dag, laugardag 20. júlí. Boðið verður upp á karnivalstemningu með alls kyns uppákomum, að því er segir á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Starfandi listamenn í Gilinu taka höndum saman á litríkum laugardegi, efna til hátíðar fyrir alla fjölskylduna frá kl. 14.00 til 17.00 og kalla hátíðina Karnivala.

Meðal þess sem í boði verður er:

  • Lúðrasveit
  • Ókeypis candy floss
  • Candyfloss drottningin verður á staðnum
  • Andlitsmálun
  • Málað á Karnivölur (steinvölur)
  • Lista og handverksmarkaður
  • Karnivölutónlist

Klukkan 17.00 hefjast síðan ókeypis tónleikar í tónleikaröðinni Mysingur í portinu á bak við Listasafnið. Þar koma fram REA og The Cult Of One. REA er tónlistarkona frá Sviss sem semur og spilar tilraunakennda popp- og listatónlist. The Cult Of One er eins manns hljómsveit Henriks Björnssonar sem hefur gert það gott með Singapore Sling og Dead Skeletons. Henrik spilar kraftmikið bílskúrsrokk með hollow body gítar og trommuheila.

  • Athugið að Listagilið verður lokað fyrir umferð ökutækja i dag kl. 11.00-18.00. Þó verður hægt að komast að bílastæði efst í Listagilinu.