Fréttir
Loka brekkum í tvo daga til að spara snjó
08.04.2025 kl. 20:00

Í brekkunum fyrir fáeinum dögum. Mynd af vef Akureyrarbæjar: Jónas Stefánsson
Sumarhiti var í Hlíðarfjalli í gær og hætt er við að næstu dagar verði lítið skárri, segir á vef Akureyrarbæjar. Skíðasvæðið var opið í dag en næstu tvo daga, miðvikudag og fimmtudag verður lokað. „Þannig er reynt að spara snjóinn í brekkunum og um leið og kólnar aftur verður snjó rutt upp og hann fluttur í brautirnar,“ segir í tilkynningunni.
Opnað verður aftur á föstudaginn og haft opið um helgina. Spáð er kólnandi veðri um og eftir helgi. Ekki er loku fyrir það skotið að snjóað gæti með ofurlitlu frosti í næstu viku.
„Með hækkandi hita mýkist snjórinn hratt og orðið hefur vart við grunn snjólög á ákveðnum stöðum, sérstaklega á neðri svæðum. Til að minnka hættuna á að skemma svæðið vegna hratt bráðnandi snjóa verða snjótroðarar ekki keyrðir yfir viðkvæmustu svæðin. Gestir Hlíðarfjalls eru beðnir að fara varlega, halda sig innan merktra brauta og sýna aðgát við breytilegar aðstæður,“ segir í tilkynningunni.
Fólk er beðið að virða merkingur og lokanir. „Það er lítill sem enginn snjór utan troðinna leiða og mjög varasamt. Eins eru leiðir ekki komnar í fulla breidd og því þarf að nýta plássið vel í brekkunum og taka tillit hvert til annars.“