Fara í efni
Menning

Listrænt tungumál norðurslóða og hvalir

Marja Helander, Monchegorsk, 2014

Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri í kvöld kl. 20.00; Samsýningin Er þetta norður? og Fluxus sýningarverkefnið STRANDED – W(H)/ALE A REMAKE PORTFOLIO – MORE THAN THIS, EVEN. Í fréttatilkynningu segir að boðið verði upp á listamannaspjall með Inuuteq Storch og Gunnari Jónssyni um fyrrnefndu sýninguna og sýningarstjóraspjall með Wolfgang Hainke og Freyju Reynisdóttur um þá síðarnefndu. Á opnunarkvöldinu verður einnig boðið upp á örtónleika með grænlensku hljómsveitinni Nanook.

Er þetta norður?

Er þetta norður? er hluti af Listahátíð í Reykjavík og verður einnig sett upp í Norræna húsinu í Reykjavík árið 2025. Í kynningartexta um sýninguna segir: Hver er afmörkun „norðursins“? Hvar eru landamæri Norðurheimskautsins? Hvað einkennir þau sem sem eiga heima á slóðum Norðurheimskautsins? Eru verk listamanna frá norðurslóðum alltaf unnin undir áhrifum af búsetu þeirra þar? Þátttakendur eru Gunnar Jónsson, Anders Sunna, Máret Ánne Sara, Inuuteq Storch, Nicholas Galanin, Dunya Zakha, Marja Helander og Maureen Gruben.

Sýningarstjórar: Daría Sól Andrews og Hlynur Hallsson.

Auga hvalsins, Frantz Wulffhagen, 1669

STRANDED – W(H)/ALE A REMAKE PORTFOLIO – MORE THAN THIS, EVEN

Sýningin samanstendur af verkum unnum í mismunandi miðla sem öll fjalla um eða tengjast hvölum á einn eða annan hátt. Hönnun sýningarinnar og vinnsla verkanna er í anda Flúxushreyfingarinnar og hefur hún verið sett upp víða, s.s. í Búdapest í Ungverjalandi og í Recife í Brasilíu.

Á sýningunni má m.a. sjá – utan endurgerðar á verki Marcel Duchamp BOITE-EN-VALISE (1968) – endurprentun af risastóru málverki Franz Wulfhagen frá 1669 sem sýnir hvalreka. Verkið var fyrst sýnt í ráðhúsi Bremen í Þýskalandi, en Wulfhagen var einn af nemendum Rembrandt. Einnig verða sýnd verk eftir þekkta Flúxus listamenn, s.s. AY-O, Nam June Paik og Emmett Williams; listamenn er seinna tengdust Flúxus, s.s. Boris Nieslony, Ann Noël, Jürgen O. Olbrich, Pavel Schmidt og Natalie Thomkins, sem og Avantgarde listamennina Richard Hamilton, Allan Kaprow and Daniel Spoerri.

Þátttaka, samvinna og samskipti eru miðlæg í sýningarhönnuninni og er hún hugsuð sem einhvers konar samkomuvettvangur fyrir Dance with Life.

Sýningarstjórn og hönnun: Wolfgang Hainke og Freyja Reynisdóttir.