Listatvíeykið Blik sýnir í Mjólkurbúðinni

Sýningin 'Manstu þegar andardrátturinn festist í blöðrunni?' verður opnuð í Mjólkurbúðinni á morgun, föstudag, kl. 17.00. Á sýningunni leiða listakonurnar Solveig Edda og Ólöf Dómhildur, listatvíeykið Blik, saman verk sín sem eru í formi málverks, ljósmynda, skúlptúra og innsetninga í marglaga samtal um viðkvæmni, efni og mörk, segir í fréttatilkynningu.
Solveig Edda sýnir olíumálverk, skúlptúra og innsetningu, en Ólöf Dómhildur ljósmyndaverk unnin með bleki í anda handmálunnar, skúlptúra og innsetningu, ljósmyndir teknar á Vestfjörðum og Norðurlandi. Verkin vinna með tengsl yfirborðs og dýptar, efnis og upplausnar, hins sýnilega og þess sem leynist undir.
Sýningin opnar með gjörningi þar sem vatn, ljós og hreyfing hafa áhrif á upplifun áhorfandans á yfirborðinu, segir í tilkynningunni. Í gjörningnum kanna listakonurnar mörk með því að dýfa höfði í vatn – þar sem augnablikið á milli öndunar og kyrrðar verður að táknmynd tilverunnar.
Ólöf Dómhildur til vinstri og Solveig Edda til hægri. Myndir: aðsendar
Áratuga reynsla listakvennana sameinast í Blik
Listakonurnar ólust upp í Reykjavík, en fluttu vestur á Ísafjörð á fullorðinsárum og starfa þar í myndlist meðfram öðrum störfum. Leið þeirra liggur nú norður að sýna afrakstur síðustu 2 ára. Með sýningunni vilja þær skapa rými fyrir hugleiðingu og dýpri tengingu í gegnum efni, ljós og næmni – bæði áhorfanda og rýmis. Blik sameinar tveggja áratuga reynslu Ólafar og Solveigar í myndlist. Hvor um sig hefur sérhæft sig í sínum miðli Ólöf, ljósmyndun og Solveig, málverki, en í sameiginlegum verkum þeirra í Blik verða þessi miðlar hluti af opnu samtali þar sem næmni, efni og umbreyting eru í forgrunni.
Opnunin verður föstudaginn 11. apríl kl. 17:00 Léttar veitingar verða í boði. Sýningin verður opin 11.–19. apríl kl. 14-17 alla daga.
Aðgangur ókeypis.
Viðburðurinn á Facebook.