Listasafnið: Kúgun úkraínskra listamanna

Þriðjudagsfyrirlestrar Listasafnsins á Akureyri halda áfram. Þriðjudaginn 18. febrúar kl. 17-17.40 er komið að úkraínsku listakonunni Katerynu Ilchenko. Hún ætlar að fjalla um úkraínskt listafólk sem var uppi á árunum 1920-1930 og beitt grimmilegri kúgun af hendi Sovétríkjanna. Ógnarstjórnin þaggaði niður í listafólkinu með hótunum, ofbeldi og morðum og raddir þeirra voru þurrkaðar út. Fyrirlesturinn ber heitið The Executed Renaissance of Ukraine.
„Saga þessa fólks má ekki gleymast því sagan endurtekur sig“ segir Kateryna. „Hvað segja raddir látinna listamanna okkur? Hvað áttu þær eftir að segja okkur?“
Kateryna Ilchenko lærði stafræna list í Kyiv og fyrir innrás Rússa í Úkraínu vann hún við listkennslu barna, myndskreytingar og hönnun. Hún skrifar einnig bækur og ljóð. Hún flúði ásamt móður sinni til Íslands árið 2021, fljótlega eftir innrásina, og hefur búið á Akureyri síðan.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Gilfélagsins. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Þórgunnur Þórsdóttir, listakona, Angelika Haak, myndlistarkona, Brynja Baldursdóttir, myndlistarkona, auk fulltrúa Myndlistarfélagsins.