Fara í efni
Menning

Leiðsögn um verk Ingibjargar og Ragnars

Myndlistarmennirnir Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Ragnar Kjartansson hafa unnið fjölbreytileg verk fyrir Flóru menningarhús í Sigurhæðum í ár. Verkin eru innan um eða í innsetningum sem miðla menningararfi staðarins og sögu hússins og laugardaginn komandi, 13. júlí kl. 13.00, verður Hlynur Hallsson myndlistarmaður með sérstaka myndlistar leiðsögn.

Eins og kunnugt er létu hjónin Matthías Jochumsson og Guðrún Runólfsdóttir reisa Sigurhæðir árið 1903 og það var bæði heimili þeirra og vinnustaður þar sem þau unnu að listsköpun sinni.

Á laugardaginn fer Hlynur um Sigurhæðir og segir frá verkum Ingibjargar og Ragnars. „Skoðað verður hvernig þau kallast á við menningararfinn og koma inn með ferska vinkla á efnivið staðarins, 150 ár frá því að Matthías samdi sálminn sem síðar varð þjóðsöngur okkar og tengsl verka Ingibjargar og Ragnars við hann. Kristín Þóra Kjartansdóttir, staðarhaldari í Sigurhæðum kemur einnig með stutt og áhugaverð söguleg innskot í leiðsögnina,“ segir í tilkynningu frá Sigurhæðum.

„Forvitnileg, ljúf, djúp og fyndin hálftíma samræða og gott tækifæri til að koma í þetta dásamlega hús og kynnast einnig framúrskarandi myndlist.“

Leiðsögnin fer fram á íslensku, öll eru velkomin og það er enginn aðgangseyrir.