Fara í efni
Mannlíf

Langar þig að búa til þitt eigið hljóðfæri?

„Langar þig að búa til þitt eigið hljóðfæri?“ er spurt í tilkynningu frá Minjasafninu á Akureyri. Til stóð að boðið upp á slíka smiðju á laugardag, á sýningunni Tónlistarbærinn Akureyri, en vegna slæmrar veðurspár hefur atburðinum verið frestað til sunnudags. Hann hefst klukkan 13.00 og stendur til 15.00.

„Þar verða gerð litrík og hljómfögur hljóðfæri úr endurnýttu efni. Listakonurnar Brynhildur og Jonna leiða smiðjurnar af sinni alkunnu snilld. Aðgangur ókeypis,“ í tilkynningunni frá Minjasafninu.