KS í þann mund að eignast B. Jensen
Kaupfélag Skagfirðinga (KS) er að kaupa fjölskyldufyrirtækið B.Jensen sem rekur sláturhús, kjötvinnslu og verslun við Lónsbakka, við landamæri Hörgársveitar og Akureyrar.
KS eignaðist fyrr á árinu allt hlutafé í Kjarnafæði-Norðlenska.
„Ég get staðfest að það eru alvarlegar viðræður í gangi milli KS og eigenda B.Jensen um kaup hins fyrrnefnda á hinu síðarnefnda. Samningar liggja í raun fyrir en það er verið að hnýta lausa enda og gert er ráð fyrir að viðskiptin klárist á næstu 2-3 vikum,“ segir Ágúst Torfi Hauksson framkvæmdastjóri Kjarnafæðis-Norðlenska við Akureyri.net.
„Með kaupunum verða þá bæði stórgripasláturhúsin í Eyjafirði á sömu hendi og markmiðið með viðskiptunum er að auka hagkvæmni og ná fram hagræðingu í greininni, bændum og neytendum til heilla,“ segir Ágúst Torfi – og vísar til sláthúss Kjarnafæðis-Norðlenska og B.Jensen.
„Viðskiptin eru ekki endanlega um garð gengin og ótímabært að tjá sig í smáatriðum um hvernig málum verði fyrir komið í framhaldinu enda talsverð vinna framundan við könnun valkosta og fleira,“ segir Ágúst Torfi. „Það eru spennandi tímar framundan og kaupin á B.Jensen eru mikilvægt skref í átt að frekari hagræðingu í greininni.“
- B. Jensen er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1968 af hjónunum Benny Albert Jensen og Jónínu Sigurbjörgu Guðjónsdóttir en núverandi eigendur eru Erik, sonur þeirra hjóna, og eiginkona hans, Ingibjörg Stella Bjarndóttir sem reka fyrirtækið ásamt börnum sínum.