„Kostuleg klassík“ með Westmont háskóla

Sinfóníuhljómsveit Westmont-háskóla í Kaliforníu leikur á þrennum tónleikum hérlendis á næstunni, þeim síðustu í Hofi á Akureyri 11. maí. Aðgangur á alla tónleikana er ókeypis en sækja þarf miða á tix.is.
Yfirskrift tónleikanna er Kostuleg klassík. „Bandarísk verk eru fyrirferðamikil á efnisskránni og það er óhætt að segja að hún sé bráðskemmtileg og í léttari kantinum,“ segir í tilkynningu um tónleikana. „Meðal verka eru tónsmíðar eftir Aaron Copland, söngleikjahöfundinn Morton Gould, Emmy-verðlaunahafann Steve Heitzeg auk stefja úr Indiana Jones og Star Wars. Hér er því um að ræða kostulega skemmtun fyrir alla fjölskylduna.“
Hljómsveitin, sem er skipuð 60 háskólanemum í hljóðfæraleik, var stofnuð árið 2006 og hefur getið sér gott orð fyrir flutning sinn á ýmsum lykilverkum tónbókmenntanna með sérstakri áherslu á bandarísk hljómsveitarverk, að því er segir í tilkynningunni. „Auk þess hefur sveitin pantað verk frá ýmsum núlifandi tónskáldum á borð við Emma Lou Diemer, James Stephenson og Daniel Gee. Stjórnandi Westmont-sinfóníunnar er Dr. Ruth Lin, sem er jafnframt forseti tónlistardeildar Westmont-háskóla.“
Sveitin er iðulega á faraldsfæti og hefur heimsótt Ítalíu, Kína, Ungverjaland, Austurríki og Bretland á undanförnum árum auk þess að spila um gervöll Bandaríkin. Nú gefst ungum sem öldnum tónlistarunnendum á Íslandi í fyrsta sinn tækifæri til að njóta Westmont-sinfóníunnar hér á landi.
- 6. maí - Tónleikar í Langholtskirkju ásamt Háskólakórnum
- 8. maí - Tónleikar í Reykholtskirkju
- 11. maí - Tónleikar í Hofi á Akureyri