Kirkjutröppulabb vinsælt í hádeginu
Hópur starfsmanna Wise, sem vinnur á skrifstofu í gamla KEA-húsinu, Hafnarstræti 91, hefur tekið upp á því að fara daglega út í heilsubótargöngu í kirkjutröppunum. Framtakið spurðist út og nú hafa fleiri starfsmenn í fyrirtækjum og þjónustu í miðbænum slegist í hópinn. Rebekka Kristín Garðarsdóttir er yfir starfsstöð Wise á Akureyri, og hún var frískleg í tröppugöngu þegar blaðamann Akureyri.net bar að garði.
Rebekka Kristín Garðarsdóttir, forstöðukona Wise á Akureyri. Wise er upplýsingatæknifyrirtæki. Mynd: RH
„Okkur finnst svo frábært framtak hjá bænum, að taka þessar tröppur í gegn og hafa hita í þeim svo þær nýtist allan ársins hring,“ segir Rebekka. „Við vorum búin að vera að horfa á þessar tröppur út um gluggann og okkur langaði einfaldlega að nota þær. Við vinnum innivinnu, þannig að við sitjum bara og koðnum niður ef við förum ekki aðeins að hreyfa okkur.“ Rebekka segir að það sé í rauninni bara verið að taka kaffistofurúntinn aðeins út fyrir húsið.
Það væri gaman að sjá ennþá fleiri mæta! Um að gera að nýta þessar tröppur
Eitthvað kvisaðist það út að kirkjutröppulabb væri á dagskrá hjá starfsfólki Wise, þannig að fleiri hafa bæst í hópinn. „Það bætist liggur við daglega við, og fleiri fyrirtæki farin að spyrja hvenær við séum að fara út,“ segir Rebekka. „Við erum oftast að fara kl. 11.45 og það er svona tíminn sem við viljum auglýsa. Stundum förum við þó aðeins fyrr eða aðeins síðar, ef það þarf að mæta á fund eða eitthvað. Það er ekkert aðalatriðið að öll fari á sama tíma.“
Hver veit nema hér sé á ferðinni lítill heilsubótarneisti í atvinnulíf miðbæjarins, sem muni vaxa upp í fjöldamætingu í kirkjutröppurnar? „Það væri gaman að sjá ennþá fleiri mæta! Um að gera að nýta þessar tröppur,“ segir Rebekka að lokum.
Skóbúnaðurinn í kirkjutröppugöngunni er allskonar, en Hannes Kristjánsson, starfsmaður Wisefish, systurfyrirtæki Wise, sigraði daginn í gær með þessum verklegu stíbbum. Mynd: RH