Íþróttir
Katla Björg tvöfaldur Íslandsmeistari
02.04.2023 kl. 15:15
Katla Björg Dagbjartsdóttir sigri hrósandi á Skíðamóti Íslands á Dalvík. Ljósmynd Guðmundur Jakobsson/Skíðasamband Íslands
Katla Björg Dagbjartsdóttir úr Skíðafélagi Akureyrar varð um helgina tvöfaldur Íslandsmeistari í alpagreinum; hún sigraði í svigi í gær og stórsvigi í dag. Þá varð hinn 19 ára Tobias Hansen frá Akureyri Íslandsmeistari í stórsvigi í dag en Ólafsfirðingurinn Matthías Kristinsson (Björnssonar) varð Íslandsmeistari í svigi í gær. Keppt var á Dalvík.
Svig kvenna
- Katla Björg Dagbjartsdóttir, Akureyri 1:29,26 mín
- Signý Sveinbjörnsdóttir, ÍR 1:31.04
- Harpa María Friðgeirsdóttir, Ármanni 1:31,99
Svig karla
- Matthías Kristinsson, Ólafsfirði 1:24,76
- Gauti Guðmundsson, KR 1:26,01
- Magnús Finnsson, Akureyri 1:26,83
Stórsvig kvenna
- Katla Björg Dagbjartsdóttir, Akureyri 1:58,02
- Sonja Li Kristinsdóttir, Akureyri 1:58,46
- Harpa María Friðgeirsdóttir, Ármanni 1:59,21
Stórsvig karla
- Tobias Hansen, Akureyri 1:52,67
- Matthías Kristinsson, Ólafsfirði 1:53,28
- Gauti Guðmundsson, KR 1:54,13