Fara í efni
Mannlíf

„Kann afskaplega vel við sjómannslífið“

Myndir af vef Samherja

Þórhildur Þórhallsdóttir sem búsett er á Akureyri hefur verið kokkur á skipum Samherja í nærri þrjú ár, síðustu tvö árin á Kaldbak EA 1. Þórhildur hafði ásamt tveimur konum rekið veitingahúsið Kaffi Ilm á Akureyri í tíu ár og þegar þær ákváðu að selja þetta vinsæla veitingahús stóð Þórhildur á krossgötum varðandi atvinnu.

Aðeins nokkrum dögum eftir söluna bauðst henni að gerast kokkur á Björgu EA 7, togara Samherja og hún kveðst heppin að hafa hitt á það starf. Þetta kemur fram í skemmtilegu spjalli við Þórhildi á vef Samherja.

Kaldbakur og Kaldbakur, skipið glæsilega og fjallið fallega og tignarlega.

Eiginmaður Þórhildar er Brynjar Sigurðsson, vélstjóri Björgu. Hún stökk á þetta tilboð og síðan þá hefur Þórhildur verðið kokkur á nokkrum skipum Samherja, einnig á fraktskipi Eimskips.

„Kokkurinn á Björgu var að fara í frí, þannig að mér bauðst að leysa hann af og núna þremur árum síðar er staðan þessi, ég er enn að elda og sé alls ekki eftir því að hafa tekið þessu tilboði á sínum tíma,“ í viðtali á heimasíðu Samherja.

Brjálað veður í fyrsta túrnum

„Ég gleymi fyrsta túrnum sjálfsagt seint eða aldrei. Við fórum um borð í Grundarfirði og sjórinn var spegilsléttur. Skömmu síðar var veðrið orðið brjálað, svo ekki sé meira sagt með tilheyrandi öldugangi. Meira að setja töluðu strákarnir um borð að veðrið væri mjög slæmt. Ég var rosalega sjóveik fyrstu tvo dagana en áhöfnin hjálpaði mér við ýmislegt, svo sem uppvask og annan frágang. Ég tók sjóveikitöflur og varð hundslöpp en samt staðráðin í því að standa mína plikt þessa þrjá mánuði sem ég hafði samþykkt að taka að mér.“

Þórhildur við grillið í blíðskaparveðri úti á sjó.

Eins og stórt heimili

Í áhöfn Kaldbaks eru þrettán manns. Þórhildur segir að dæmigerður starfsdagur hefjist skömmu fyrir klukkan sjö á morgnana.

„Þetta er bara eins og stórt heimili, getum við sagt. Dagurinn hefst með því að útbúa morgunverð og síðan tekur við að undirbúa daginn. Fyrra hollið kemur í hádegismat klukkan ellefu og seinna hollið klukkustund síðar. Þar á eftir tekur við að ganga frá og undirbúa síðdegiskaffi og kvöldverð. Þar á eftir geri ég klárt fyrir nóttina, venjulega er ég búin um klukkan níu á kvöldin, þannig að vinnudagurinn er nokkuð langur. Mér finnst best að taka til hendinni á morgnana, þá baka ég gjarnan.“

Horfa saman á sápuóperu

Þórhildur segir  að í borðsalnum sé gjarnan spjallað um heima og geima og stundum blandi hún sér í umræðuna. „Ég tek mér yfirleitt pásu frá störfum á morgnana til að horfa á sápuóperuþættina Bold and the Beautiful, þá þýðir yfirleitt lítið að ónáða mig,“ segir hún. „Þeir sem eru inni koma af og til og horfa á þættina, þannig að þetta er allt saman voðalega heimilislegt. Svo er ég oft að prjóna í rólegheitum og spjalla um daginn og veginn við strákana, þeir virðast kunna ágætlega við það.“

Hluti áhafnar, frá vinstri: Þorsteinn Haraldsson, Sigurður Guðmundsson, Árni Brjánn Angantýsson, Þórhildur Þórhallsdóttir, Jóhannes Egill Árnason og Lárus Guðmundsson.

Hjónin í landi á sama tíma

„Yfirleitt fer ég í þrjá túra og svo er jafn langt frí. Hver veiðiferð tekur fimm til sjö sólarhringa en það er ekki stoppað lengi í landi, aflanum er landað og svo haldið strax á miðin. Í inniverum skapast tækifæri til að ferðast eða gera eitthvað skemmtilegt, enda eru þ‏eir sem starfa á móti okkur afskaplega liðlegir við að gera okkur hjónunum kleift að vera í landi á sama tíma,“ segir Þórhildur.

„Börnin okkar eru flutt að heiman og mér heyrist á þeim að þau séu ósköp sátt við að mamman sé á sjónum. Netsambandið er auk þess svo gott að það er lítið mál að vera í góðu sambandi og get því með auðveldum hætti spjallað við börn og barnabörn. Vinkonunum fannst þetta svolítið skrýtið í fyrstu en ég get sömuleiðis alltaf tengt mig við saumaklúbbinn og tekið þátt í gleðskapnum.“

Hluti áhafnar, frá vinstri: Vadim Gusev, Óskar Sigurpálsson, Þórhildur Þórhallsdóttir, Davíð Eggertsson, Sveinn Sveinsson og Hreinn Erhardsson.

Útlendir ferðamenn hissa

Þórhildur segir aðstöðuna um borð eins og á góðu lúxusskipi. „Hérna er líkamsrækt, gufubað, heitur og kaldur pottur og vistarverurnar eru prýðilegar auk þess sem skipin eru góð í sjó. Ég leiðsegi stundum erlendum ferðamönnum og segi þeim frá Kaldbak þegar skipið er í landi. Útlendingarnir eru yfirleitt hissa á þessum góða aðbúnaði og spyrja margs, sem ég reyni að svara eftir bestu getu. Ég kann afskaplega vel við sjómannslífið og hugsa stundum með sjálfri mér að ég hafi verið heppin að hitta á þetta starf.“

Predika um mikilvægi grænmetis

Þórhildur segir að fiskur sé oftast í matinn á hverjum degi. „Já, svona yfirleitt. Aðgengi að hráefninu er náttúrulega frábært og mér finnst líka einstaklega gaman að elda fisk. Annars borða þeir svo að segja allan mat. Sumir eru að vísu latir við grænmetið og þá stend ég gjarnan yfir þeim og predika um mikilvægi þess að borða grænmeti, Þeir hlýða mér yfirleitt og fá sér grænmeti,“ segir Þórhildur Þórhallsdóttir kokkur á Kaldbaki EA 1.

LÚÐURÉTTUR

Í lok viðtalsins gefur Þórhildur uppskrift að dýrindis lúðurétti sem hún eldar gjarnan um borð, og sjálfsagt að birta hana hér.

  • Veltið fiskinum upp úr hveiti og kryddið með sjávarsalti og sítrónupipar ásamt örlitlu af tarragon.
  • Lúðan steikt í olíu og smá smjörklípu, gott er að hafa pönnuna vel heita til að fá gullin lit á stykkin, um það bil tvær mínútur á hvorri hlið.
  • Lúðan er síðan sett í ofnskúffu og sósunni hellt yfir, sett í ofn í 5-8 mín á 100 gráðum, fer eftir þykktinni á stykkjunum.
  • Passið að hafa lúðuna ekki of lengi í ofninum svo hún þorni ekki .

Sósan dugar fyrir 6-8 skammta:

  • 1/2 ltr. rjómi
  • 1/2 villisveppaostur
  • 1/2 piparostur
  • 1 msk saxað ferskt tarragon eða þurrkað
  • 1/2 teningur fiskikraftur
  • 1-2 msk humarkraftur
  • 1 tsk sítrónusafi
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Gott er að hafa ostinn rifinn eða saxaðan smátt.
  • Allt sett í pott og hitað þar til osturinn er alveg bráðnaður, sósunni hellt yfir fiskinn og bakað í ofninum.
  • Nýjar kartöflur með og gott ferskt salat.

Verði ykkur að góðu !