Ingibjörg Isaksen áfram efst hjá Framsókn
Ingibjörg Ólöf Isaksen, alþingismaður, verður í 1. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi við kosningarnar til Alþingis 30. nóvember og Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður, verður í 2. sæti. Listinn var samþykktur síðdegis á fjölmennu kjördæmisþingi á Hótel Seli í Mývatnssveit.
Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar í Múlaþingi, verður í 3. sæti listans, Skúli Bragi Geirdal, verkefnisstjóri Fjölmiðlanefndar, verður í 4. sæti og í því 5. verður Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð.
„Ég er stolt af því að fá að leiða þennan öfluga lista okkar Framsóknarfólks í kjördæminu. Við byggjum á góðri reynslu, dýrmætum mannauð og breiðri þekkingu á kjördæminu öllu,“ segir Ingibjörg Isaksen í tilkynningu sem Framsókn sendi frá sér. „Við höfum átt í góðu samtali við fólkið í kjördæminu og göngum full tilhlökkunar til samtals við kjósendur, enda eru tækifærin mörg og fjölbreytt. Við viljum halda áfram að efla heilbrigðisþjónustu um land allt, vinna að orkuöryggi, húsnæðismálum og ekki síst að vinna að lækkun vaxta og verðbólgu fyrir fólkið í landinu. Við erum stolt af þeim árangri sem náðst hefur í flóknu samstarfi á síðustu árum og hlökkum til samtalsins næstu vikna.“
Þórarinn Ingi Pétursson - Jónína Brynjólfsdóttir - Skúli Bragi Geirdal - Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Listi Framsóknar í Norðausturkjördæmi í heild sinni:
- Ingibjörg Ólöf Isaksen, alþingismaður, Akureyri
- Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður, Grýtubakkahreppi
- Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, Múlaþingi
- Skúli Bragi Geirdal, verkefnisstjóri Fjölmiðlanefndar, Akureyri
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi, Fjarðabyggð
- Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi, Norðurþing
- Ásdís Helga Bjarnadóttir, yfirverkefnastjóri, Múlaþingi
- Jón K. Ólafsson, forstöðumaður, Fjallabyggð
- Eiður Pétursson, vélfræðingur, Norðurþingi
- Halldóra Magnúsdóttir, kennari, Eyjafjarðarsveit
- Elís Pétur Elísson, framkvæmdastjóri, Fjarðarbyggð
- Kristjana Louise Friðbjarnardóttir, starfsmaður á hjúkrunarheimili, Vopnafirði
- Eggert Stefánsson, bóndi, Langanesbyggð
- Patrycja Maria Reimus, námsráðgjafi, Þingeyjarsveit
- Halldóra Hauksdóttir, lögmaður, Akureyri
- Monika Margrét Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri, Dalvíkurbyggð
- Snæbjörn Sigurðson, verkefnastjóri, Akureyri
- Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, ritari, Múlaþingi
- Egill Olgeirsson, ellilífeyrisþegi, Norðurþingi
- Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, Fjarðarbyggð