Fara í efni
Fréttir

Indíana ráðin til að upplýsa Akureyringa

Indíana Hreinsdóttir er nýhætt sem markaðsstjóri MAK og færir sig yfir í upplýsingagjöf hjá Akureyrarbæ. Mynd: úr einkasafni

Indíana Hreinsdóttir hefur verið ráðin til Akureyrarbæjar sem verkefnastjóri upplýsingamiðlunar.  Að sögn Þórgnýs Dýrfjörðs, forstöðumanns atvinnu- og menningarmála, sóttu 12 manns um starfið.

Að sögn Þórgnýs hefur enginn sinnt þessu starfi undanfarin tvö ár en Jón Þór Kristjánsson sinnti því þar á undan. Markmið starfsins er að efla og auka samtal milli Akureyrarbæjar og íbúa bæjarins með fjölbreytilegri upplýsingagjöf. 

Indíana hefur störf um mánaðamótin en hún hefur sinnt starfi markaðsstjóra Menningarfélags Akureyrar undanfarin sex ár. Þar á undan starfaði hún sem blaðamaður.