Hálfa leið til Bretlands í Hagkaup
Um þessar mundir standa yfir breskir dagar í verslunum Hagkaups þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval af ýmsum vörum frá Bretlandi. Fyrir þá sem hyggjast nýta sér beina flugið frá Akureyri til Bretlands í vetur gæti þetta verið skemmtileg upphitun fyrir ferðalagið en eins og Akureyri.net hefur áður greint frá þá er vetrarflug Easyjet að hefjast í nóvember þar sem boðið verður upp á beint flug milli Akureyrar og bæði London Gatwick og Manchester.
Samansafn af breskum vörum
Þemadagarnir í Hagkaup, eru samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Hagkaups, skemmtileg tilbreyting fyrir neytendur þar sem boðið er upp á nýjar og spennandi vörur. Dagarnir voru formlega settir í einni af verslunum Hagkaups í Reykjavík þann 22. ágúst af sendiherra Bretlands á Íslandi, Dr. Bryony Mathew, og standa þeir til 27. ágúst.
Ha
Hagkaup á Akureyri tekur þátt í breskum dögum Mynd: Ren Títus Gates