Fréttir
Götulokanir þriðjudag vegna malbikunar
26.08.2024 kl. 19:00
Hlíðarbraut verður lokuð frá Merkigili að Hlíðarfjallsvegi á morgun, þriðjudaginn 27. ágúst, kl. 9-23 vegna malbikunarframkvæmda. Jafnframt má búast við töfum á umferð um hringtorgið við Hlíðarfjallsveg. Malbikun þar verður unnin í tveimur áföngum og verður umferðarstjórnun meðan á þeirri vinnu stendur.
Vinnu við Dalsbraut á að ljúka í dag og verður hún opnuð fyrir umferð á ný áður en Hlíðarbraut verður lokað.
Þessar framkvæmdir hafa áhrif á leiðir strætisvagna sem hér segir:
- Leiðir 1 og 2 aka aftur um Dalsbraut samkvæmt leiðakerfinu.
- Leiðir 5 og 6 aka um Dalsbraut á meðan Hlíðarbraut er lokuð.
Fram kemur í tilkynningu frá SVA að búast megi við töfum vegna þessa, bæði hjá strætisvögnum og ferliþjónustu.