Fréttir
Gleðilegt nýtt ár!
01.01.2025 kl. 12:00
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Akureyri.net óskar lesendum og velunnurum gleðilegs nýs árs og þakkar innilega fyrir samfylgdina á árinu sem var að kveðja.
2024 var fjórða heila starfsár Akureyri.net síðan vefmiðillinn var endurvakinn af nýjum eigendum í nóvember 2020. Lesendur tóku miðlinum fagnandi og Akureyri.net hefur fest sig rækilega í sessi.
Lesendur hafa verið duglegir við að benda á áhugavert umfjöllunarefni og svo verður vonandi áfram. Best er að senda ábendingar um efni á netfangið skapti@akureyri.net
Megi árið 2025 færa öllum gleði og farsæld!