Fara í efni
Mannlíf

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ!

Til hamingju með daginn, Akureyringar og aðrir landsmenn! Gleðilega hátíð!

Upp er runninn 17. júní, þjóðhátíðardagur Íslendinga. Í dag eru 80 ár síðan lýðveldið Ísland var stofnað á Þingvöllum.

Eins og síðustu ár halda Akureyringar upp á daginn með formlegri dagskrá og fjölskylduskemmtun í Lystigarðinum.

Greint er frá dagskránni á vef Akureyrarbæjar.

Blómabíllinn leggur af stað frá Naustaskóla kl. 11 árdegis og stansar við grunnskóla bæjarins. Gert er ráð fyrir að hann verði kominn að Lystigarðinum um kl. 12. Kort af akstursleið bílsins er að finna HÉR. Smellið á myndina til að stækka hana.

Skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar leggur af stað frá Gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti kl. 12.30 og heldur suður í Lystigarð þar sem formleg hátíðarhöld fara fram. Kort af gönguleið er að finna HÉR.

Hátíðardagskrá í Lystigarðinum kl. 13.00-13.45

Kynnir þjóðhátíðarinnar er Sesselía Ólafsdóttir, leikkona og vandræðaskáld.

  • Fánahylling
  • Lúðrasveit Akureyrar
  • Bænagjörð og blessun. Séra Hildur Eir Bolladóttir
  • Kór eldri borgara syngur undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur
  • Fjallkonan, Diljá María Jóhannsdóttir, nýstúdent frá MA
  • Ávarp forseta bæjarstjórnar, Höllu Bjarkar Reynisdóttur

BÓKARGJÖF TIL LANDSMANNA
Vakin er athygli á því á vef bæjarins að bókinni Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær sem forsætisráðuneytið gefur út í samvinnu við Forlagið, og er gjöf til landsmanna, verður útdeilt á hátíðarsvæðinu meðan birgðir endast sem og 1.000 bollakökum, einnig í boði ráðuneytisins.

Bókina má þar að auki nálgast án endurgjalds í Amtsbókasafninu og Sundlaug Akureyrar. „Fjallkonan er þjóðartákn og í bókinni er kafað ofan í sögu fjallkonunnar og birt ávörp fjallkonunnar allt frá árinu 1947 ásamt úrvali þjóðhátíðarljóða. Í bókinni eru þýðingar m.a. á ensku og pólsku,“ segir í tilkynningunni.

Dagskrá á MA-túninu og í Lystigarðinum frá kl. 14.00-17.00

  • Svavar Knútur
  • Dansatriði frá DSA Listdansskóla Akureyrar
  • Hljómsveitin Tómarúm
  • Birkir Blær
  • Dansatriði frá Dansskóla STEPS
  • Jónína Björt & Ívar Helga
  • Hoppukastalar
  • Villi vandræðaskáld
  • Andlitsmálning
  • Sölutjald frá Skátunum
  • Skátatívolí
  • Silli kokkur með matarvagn

Kort af hátíðarsvæðinu má sjá HÉR.

Sigling með Húna II
Boðið verður upp á skemmtisiglingu um Pollinn með Húna II kl. 17.00. Tekið er fram að aðeins 80 farþegar komast í ferðina. Fyrstir koma, fyrstir fá, segir þar. Siglt verður frá Fiskihöfninni, austan við Hagkaup.

Hátíðarhöldin 17. júní á Facebook

Úr Lystigarðinum 17. júní á síðasta ári. Mynd af vef Akureyrarbæjar.