Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
10.02.2023 kl. 13:31
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 118. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Ekki er vitað hver tók mynd dagsins eða hvar þetta er. Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina – hver maðurinn er og hvar myndin er tekin – eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is
- SÉRA BENJAMÍN? – Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Ábendingar hafa borist þess efnis að maðurinn sé séra Benjamín Kristjánsson. Einnig hefur verið nefnt að myndin gæti verið tekin í Hljómskálagarðinum í Reykjavík og í baksýn séu hús við Sóleyjargötu. Býr einhver yfir frekari upplýsingum eða getur staðfest að þetta sé séra Benjamín?
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR