Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 111. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók myndina og þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hana eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • ÞEISTAREYKIR  – Myndin hér að neðan, sem Ólafur Jónsson tók einnig, birtist fyrir viku. Þetta er Þeistareikjaskáli, Ketilfjall í baksýn. Land Roverinn er með númerið A 201 og mun hafa verið í eigu Karls Hjaltasonar. Fólk er hvatt til þess að rýna betur í myndina og freista þess að þekkja nöfn fólksins.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR