Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 109. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók myndina og þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hana eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • YTRI LANGAMÝRI – Myndin hér að neðan, sem Ólafur Jónsson tók einnig, birtist fyrir viku. Nokkrar ábendingar bárust og voru allar á sömu lund: Þetta er Ytri-Langamýri í Svínavatnshreppi, í Austur-Húnavatnssýslu. 

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR