Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 233. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi skemmtilega mynd er tekin og hvaða fólk þetta er? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

    • Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Nokkrir lesendur halda því fram að hún sé tekin í Vaglaskógi en enn hafa engar ábendingar borist um hvaða fólk er þarna á ferð. Lesendur eru því hvattir til að skoða myndina vel.